fbpx
Laugardagur 02.maí 2026
433Sport

Trump spurður út í Íran og þátttöku þeirra á HM í sumar – „Mér er eiginlega alveg sama“

Hörður Snævar Jónsson
Miðvikudaginn 4. mars 2026 21:00

Trump er ekki ósnertanlegur. Mynd: Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, segist ekki hafa áhyggjur af því hvort Íran taki þátt í Heimsmeistarakeppninni í knattspyrnu í sumar, þrátt fyrir vaxandi spennu í Miðausturlöndum.

Á síðustu dögum hafa árásir Ísraels og Bandaríkjanna beinst að skotmörkum í Íran og Íranar hafa svarað með gagnárásum á ríki sem eru bandamenn Bandaríkjanna við Persaflóa.

Bandaríkin verða einn af þremur gestgjöfum HM ásamt Kanada og Mexíkó og Trump hefur verið áberandi í kynningu mótsins ásamt forseta FIFA, Gianni Infantino.

Íran hefur tryggt sér sæti á heimsmeistaramótinu í fjórða sinn í röð en mögulegt er að landið sniðgangi mótið. Þegar Trump var spurður út í málið sagði hann við Politico. „Mér er eiginlega alveg sama. Íran er mjög illa statt land.“

Ef Íran dregur sig úr keppni gætu Írak eða Sameinuðu arabísku furstadæmin fengið sætið. Írak þarf þó fyrst að vinna milliríkja umspilsleik gegn annaðhvort Bólivíu eða Súrínam til að eiga möguleika á þátttöku.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 23 klukkutímum

Fundarhöld um helgina

Fundarhöld um helgina
433Sport
Í gær

Þetta er það sem stjörnurnar virðast spá mest í þegar þær koma til Íslands – „Maður er bara vanur því“

Þetta er það sem stjörnurnar virðast spá mest í þegar þær koma til Íslands – „Maður er bara vanur því“
433Sport
Í gær

Stefnir í harða baráttu á milli United og Arsenal

Stefnir í harða baráttu á milli United og Arsenal
433Sport
Í gær

Vill þjálfa aftur á Englandi

Vill þjálfa aftur á Englandi