fbpx
Föstudagur 01.maí 2026
Pressan

Réttargeðlæknir með ótrúlega kenningu um Jeffrey Epstein – Gæti verið á lífi

Pressan
Laugardaginn 7. mars 2026 17:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Samkvæmt opinberum gögnum þá lést barnaníðingurinn Jeffrey Epstein i fangaklefa sínum 2019. Er hann sagður hafa tekið eigið líf. En réttargeðlæknirinn Leslie Dobson segir að í hinum umtöluðu Epstein-skjölum séu atriði sem veki upp alvarlegar spurningar um andlát Epstein.

Bandaríska dómsmálaráðuneytið hefur opinberað milljónir skjala tengdum Epstein. Dobson segir að mörgum spurningum sé ósvarað í skjölunum.

Kjarninn í fullyrðingu hennar snýst um upptökur úr eftirlitsmyndavélum nóttina sem Epstein fannst látinn. Hún segir að það vanti 23 sekúndur í upptökurnar.

„Já, ég held að hann sé á lífi,“ sagði hún í hlaðvarpi og vísaði þar til að í skjölunum kemur fram að lýtalæknir hafi oft komið heim til Epstein á árunum áður en hann er sagður hafa látist.

Dobson sagðist vera að vinna með skjölin í samvinnu við þingmenn. Hún sagði að líklega hafi hluti skjalanna verið ritskoðaður of mikið og að hluti þeirra hafi ekki verið birtur.

Ekkert hefur komið fram sem sannar að Epstein sé á lífi.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fundarhöld um helgina
Pressan
Fyrir 3 dögum

Konan sem giftist föður sínum rýfur þögnina um stöðu sína í dag

Konan sem giftist föður sínum rýfur þögnina um stöðu sína í dag
Pressan
Fyrir 3 dögum

Missti dóttur sína tíu árum eftir mislingasmit – þetta vill hún að allir foreldrar viti

Missti dóttur sína tíu árum eftir mislingasmit – þetta vill hún að allir foreldrar viti
Pressan
Fyrir 4 dögum

Foreldrar sakaðir um gáleysi eftir að sonur þeirra kastaði styttu fram af svölum – þrítug kona lést

Foreldrar sakaðir um gáleysi eftir að sonur þeirra kastaði styttu fram af svölum – þrítug kona lést
Pressan
Fyrir 4 dögum

Hljóp á eftir hundinum og sást aldrei aftur – 50 ár frá hvarfi Sandy Davidson

Hljóp á eftir hundinum og sást aldrei aftur – 50 ár frá hvarfi Sandy Davidson