fbpx
Mánudagur 09.mars 2026
Pressan

Pútín í mikilli klemmu – Gæti kostað hann lífið

Pressan
Laugardaginn 7. mars 2026 10:30

Vladímír Pútín.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Nú eru rúm fjögur ár síðan Rússar réðust inn í Úkraínu og stríðið er orðið að hversdagshlut í Evrópu. Viðskiptaþvinganir, mannfall og eyðilegging hafa markað djúp spor og stríðið gengur gegn bæði hernaðarlegri og pólitískri rökfræði.

Samkvæmt því sem fréttaskýrandinn Morten Strand sagði í grein í Dagbladet þá var innrásin  frá upphafi byggð á röngu mati og um leið hafi hún verið söguleg mistök.

Hann bendir á að Kremlverjar hafi meðal annars reiknað með að rússneskumælandi Úkraínubúar myndu taka rússneskum hermönnum sem frelsurum. En þetta mat þeirra var kolrangt.

Stríðið hefur breyst í langvarandi og blóðug átök sem hafa haft gríðarlegan fórnarkostnað í för með sér fyrir Rússland. Refsiaðgerðir Vesturlanda hafa mjög mikil áhrif á efnahagslífið og hundruð þúsunda rússneskra hermanna hafa fallið og særst.

Mikill fjöldi hermanna hefur snúið heim eftir að hafa særst og örkumlast. Margir hafa komið heim illa farnir á sálinni. Margir þessara hermanna hafa framið gróf afbrot eftir heimkomuna.

Strand segir að stríðið snerti ekki aðeins víglínuna, heldur einnig hversdagslífið í Rússlandi. Samfélagið greiði hátt gjald og álagið vaxi eftir því sem stríðið dregst á langinn.

Að hans mati getur verið hættulegt fyrir Vladímír Pútín að hætta stríðsrekstrinum því eftir fjögur ár og miklar fórnir sé erfitt fyrir Pútín að hætta án þess að geta sýnt fram á sigur.

Að hætta án sýnilegs árangurs getur að mati Strand haft víðtæk áhrif í Kreml og ógnað pólitískri stöðu forsetans.

„Hver einasti dagur stríðsins hefur verið klikkun. Nú er þetta orðið svo slæmt að það væri klikkun af hálfu Pútíns að hætta. Stríðið er orðið pólitískt súrefni hans. Án þess á hann á hættu að deyja,“ segir Strand.

Stríðið er því orðið að tilvistarmáli fyrir Pútín. Það snýst ekki lengur bara um landsvæði, heldur einnig um völd og það að lifa af í rússneska stjórnkerfinu.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Þetta getur gert kraftaverk fyrir líkamann

Þetta getur gert kraftaverk fyrir líkamann
Pressan
Í gær

Lengd göngutúrsins getur verið mikilvægari en skrefafjöldinn

Lengd göngutúrsins getur verið mikilvægari en skrefafjöldinn
Pressan
Í gær

Ógnvekjandi ummæli heits stuðningsmanns Pútíns – Þessar borgir verða fyrstu skotmörkin

Ógnvekjandi ummæli heits stuðningsmanns Pútíns – Þessar borgir verða fyrstu skotmörkin
Pressan
Í gær

Ugla fann sér spaugilegan samastað við hlið kökukrukku í hænulíki

Ugla fann sér spaugilegan samastað við hlið kökukrukku í hænulíki
Pressan
Fyrir 2 dögum

Fangavörður Epsteins gúgglaði hann rétt áður en lík hans fannst – Lagði líka dularfullar fjárhæðir í reiðufé inn á bankareikning sinn

Fangavörður Epsteins gúgglaði hann rétt áður en lík hans fannst – Lagði líka dularfullar fjárhæðir í reiðufé inn á bankareikning sinn
Pressan
Fyrir 2 dögum

Læknir segir þetta ástæðuna fyrir að þú átt að drekka vatn áður en þú færð þér morgunkaffið

Læknir segir þetta ástæðuna fyrir að þú átt að drekka vatn áður en þú færð þér morgunkaffið