fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Fókus

OnlyFans-stjarna með sjaldgæfan sjúkdóm – Brjóstin stækka og stækka

Fókus
Fimmtudaginn 26. febrúar 2026 10:47

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Summer Robert, 28 ára kona frá Glasgow í Skotlandi, er að eigin sögn líklega með stærstu brjóst Bretlandseyja. Hún notar skálastærð R og segir að það sé enginn dans á rósum að vera með stór brjóst – daglegt líf sé nefnilega flóknara en fólk gerir sér grein fyrir

Summer er með sjúkdóm sem kallast macromastia, sem er læknisfræðilegt heiti yfir óeðlilega stór brjóst. Ástandið getur valdið langvarandi verkjum í baki, hálsi og öxlum, auk annarra líkamlegra einkenna. Hún segir þó að stærsta áskorunin í daglegu lífi sé að finna föt sem passa.

„Að finna föt sem passa bæði um mittið og brjóstin er stærsta barátta lífs míns,“ sagði hún í viðtali við Mirror. „Ég get ekki verslað á netinu og þarf alltaf að máta allt. Það er annað hvort of þröngt eða of vítt. Ekkert passar almennilega.“

Summer, sem er með yfir 200 þúsund fylgjendur á Instagram, segir að hún hafi átt erfitt með líkamsímynd sína á unglingsárum vegna mikillar athygli sem hún fékk. Á síðari árum hafi hún þó lært að sætta sig við líkama sinn.

Hún segir að ókunnugt fólk eigi það til að vera dómhart og þarf hún oft að þola augnagot og jafnvel útskúfun.

Í viðtalinu lýsir hún atviki sem átti sér stað í Disneyland í Kaliforníu þar sem hún var beðin um að „hylja sig betur eða yfirgefa svæðið“ eftir að gestir kvörtuðu yfir klæðnaði hennar.

Hún segir upplifunina hafa verið niðurlægjandi, enda hafi hún verið fullklædd og klædd á svipaðan hátt og aðrir gestir.

Að sögn Summer er viðhorf fólks misjafnt eftir löndum. Hún segir að í Skotlandi og Englandi verði hún helst vör við vanþóknun í formi augnaráðs, en í Bandaríkjunum virðist fólk vera frjálslyndara.

Hún hefur íhugað brjóstaminnkunaraðgerð, en var upplýst um að aðgerðin gæti reynst árangurslaus þar sem brjóstin gætu vaxið aftur. Hún hefur því ekki lagt í slíka aðgerð.

Summer starfar í dag á OnlyFans og segir það hafa gert henni kleift að vinna heiman frá sér. Hún viðurkennir þó að hún fari sjaldan ein út úr húsi af ótta við óæskilega athygli.

Þrátt fyrir áskoranirnar segist hún í dag hafa lært að elska líkama sinn og hvetur aðra í svipaðri stöðu til að sætta sig við það sem gerir þá ólíka öðrum.

Mynd/Instagram
Mynd/Instagram
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 3 dögum

Urðar yfir nýlátinn leikara – „Hann var heigull sem níddist á mér“

Urðar yfir nýlátinn leikara – „Hann var heigull sem níddist á mér“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Bæjarstjóri Hafnarfjarðar fékk krefjandi spurningu á leik FH og Hauka

Bæjarstjóri Hafnarfjarðar fékk krefjandi spurningu á leik FH og Hauka
Fókus
Fyrir 5 dögum

Leikkonan opnar sig um sorglegar vendingar í baráttu hennar við MS-sjúkdóminn

Leikkonan opnar sig um sorglegar vendingar í baráttu hennar við MS-sjúkdóminn
Fókus
Fyrir 5 dögum

Enn einn harmurinn í lífi Martin Short

Enn einn harmurinn í lífi Martin Short
Fókus
Fyrir 5 dögum

Hélt fram hjá kærastanum og stendur nú frammi fyrir stóru vandamáli

Hélt fram hjá kærastanum og stendur nú frammi fyrir stóru vandamáli
Fókus
Fyrir 5 dögum

Sökuð um að auka vinsældir sínar og áhrif innan MAGA-hreyfingarinnar með her af gervimennum – „Þetta er ein sturlaðasta samsæriskenning sem ég hef heyrt“

Sökuð um að auka vinsældir sínar og áhrif innan MAGA-hreyfingarinnar með her af gervimennum – „Þetta er ein sturlaðasta samsæriskenning sem ég hef heyrt“