fbpx
Laugardagur 02.maí 2026
Pressan

Svona velur hundurinn „uppáhaldsmanneskjuna“ sína

Pressan
Laugardaginn 28. febrúar 2026 17:30

Hundar velja sér uppáhaldsmanneskju.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Hundar tengjast oft einni manneskju sterkari böndum en annarri. Það er ekki endilega eigandinn sem verður þess heiðurs aðnjótandi, þótt það séu nú algengast.

Sérfræðingar segja að val hundsins á uppáhaldsmanneskjunni tengist að stórum hluta hegðun fólks, stemmningunni og áhrifum þessa á hið daglega líf. Yfirleitt er það sú manneskja sem er rólegust, mest nærverandi og vingjarnlegust sem verður fyrir valinu. Focus skýrir frá þessu.

Carol Erickson, dýraverndunarsinni, sagði í samtali við CBS að hundar velji yfirleitt uppáhaldsmanneskjuna sína út frá jákvæðum upplifunum frekar en hver fóðrar þá.

Manneskja sem leikur við þá, sýnir þeim hollustu og skapar öryggiskennd hjá hundunum á auðveldara með að mynda náin tengsl við þá að sögn Erickson.

Á vefsíðunni Rover, sem fjallar um hunda, kemur fram að fyrstu sex mánuðirnir í lífi hundsins skipti miklu máli í þessu samhengi. Þeir séu afgerandi fyrir hverjum hundurinn treystir og að sterkustu böndin myndist á þessum tíma.

Þetta þýðir ekki að fullorðnir hundar geti ekki myndað sterk tengsl við fólk en það krefst þess að samskipti þeirra einkennist af þolinmæði og jafnvægi.

Það er misjafnt á milli tegunda hvernig tengslamyndunni er háttað. Til dæmis tengjast Border Collie og Schæffer yfirleitt sérstaklega sterkum böndum við einn aðila, eigandann. Þetta tengist þeim markmiðum sem þessar tegundir voru ræktaðar til að gegna, þar skiptir samstarf við eina manneskju sköpum svo hægt sé að leysa verkefnin.

Sérfræðingar Elle Vet Scineces segja að raddbeiting fólks hafi mikil áhrif á hvernig hundar bregðast við og það sama á við um líkamstjáningu og tilfinningalegt jafnvægi fólks. Manneskja sem virðist róleg og í góðu jafnvægi, er að mati hundsins traust og örugg en stress og óróleiki geta fælt hundinn frá fólki.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fundarhöld um helgina
Pressan
Fyrir 2 dögum

Á yfir höfði sér þunga refsingu fyrir að sleikja rör

Á yfir höfði sér þunga refsingu fyrir að sleikja rör
Pressan
Fyrir 2 dögum

Óhugnanleg ráðgáta leyst – Lík fannst sundurbútað í ferðatöskum árið 1998

Óhugnanleg ráðgáta leyst – Lík fannst sundurbútað í ferðatöskum árið 1998
Pressan
Fyrir 3 dögum

Varalesari varpar ljósi á viðvörun Trumps til Karls – „Við ræðum þetta síðar“

Varalesari varpar ljósi á viðvörun Trumps til Karls – „Við ræðum þetta síðar“
Pressan
Fyrir 3 dögum

Konan sem giftist föður sínum rýfur þögnina um stöðu sína í dag

Konan sem giftist föður sínum rýfur þögnina um stöðu sína í dag
Pressan
Fyrir 4 dögum

Dularfull dauðsföll vísindamanna ekki bara bundin við Bandaríkin

Dularfull dauðsföll vísindamanna ekki bara bundin við Bandaríkin
Pressan
Fyrir 4 dögum

Foreldrar sakaðir um gáleysi eftir að sonur þeirra kastaði styttu fram af svölum – þrítug kona lést

Foreldrar sakaðir um gáleysi eftir að sonur þeirra kastaði styttu fram af svölum – þrítug kona lést