fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Fréttir

Einn af stofnendum Samfylkingarinnar segir að ýta eigi Guðmundi Inga út fyrir „stórstjörnuframbjóðanda“

Ritstjórn DV
Miðvikudaginn 18. febrúar 2026 14:39

Guðmundur Ingi Þóroddsson formaður Afstöðu.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Margrét Björnsdóttir sem var ein af stofnendum Samfylkingarinnar undir lok síðustu aldar og var áður formaður framkvæmdastjórnar flokksins hvetur eindregið til að Guðmundur Ingi Þóroddsson formaður Afstöðu, félags fanga, fái sjöunda sætið á lista flokksins fyrir næstu borgarstjórnarkosningar í Reykjavík. Þó nokkrar deilur hafa orðið innan flokksins um stöðu Guðmundar Inga sem hefur ekki útilokað framboð fyrir annan flokk. Því hefur verið hafnað af uppstillingarnefnd og fulltrúaráði flokksins að Guðmundur Ingi fái sætið en Margrét fullyrðir að upptstillingarnefnd ætli sér að skipa „stórstjörnuframbjóðanda“ í sætið fremur en Guðmund Inga. Hljóta skrif hennar nokkurt lof meðal nafntogaðra flokksmanna sem hvetja til þess að Guðmundi Inga verði boðið sætið.

Landsmálafélagið Rósin hefur af þessum sökum sagt sig úr fulltrúaráði Samfylkingarinnar en Guðmundur Ingi er formaður félagsins. Hann hlaut sjöunda sætið í prófkjöri flokksins en fyrstu sex sætin voru bindandi fyrir uppstillingarnefnd en Guðmundur Inga hefur lýst yfir áhuga sínum á að vera í sjöunda sætinu á framboðslistanum.

Margrét skrifar um stöðu Guðmundar Inga í aðsendri grein á Vísi. Margrét segist hafa upplýsingar um að uppstillingarnefnd telji sig vera með í hendi „stórstjörnuframbjóðanda“ sem trompi hæfileika og mannkosti Guðmundar Inga margfalt. Þann frambjóðanda standi til að setja í sjöunda sætið.

Hver þessi frambjóðandi er nefnir Margrét ekki en óljóst er af orðum hennar hvort hún hafi upplýsingar um hver viðkomandi er.

Mannkostir

Margrét lýsir því næst kynnum sínum af Guðmundi Inga. Þau hafi kynnst þegar hann afplánaði fangelsisdóm á Litla Hrauni og hún starfaði hjá Háskóla Íslands. Hún hafi kannað fyrir hann möguleika á fjarnámi við skólann en lítið sem ekkert hafi verið í boði. Þau hafi síðan hist aftur þegar Guðmundur Ingi hafði losnað af Litla Hrauni og hafið nám við Háskólann í félagsráðgjöf. Hann stundi nú meistaranám í þeirri grein sem hann ljúki í vor og hafi þar að auki lokið  námskeiðum í opinberri stjórnsýslu, stjórnunarnámi við Háskólann á Bifröst ofl.

Vísar Margrét í störf Guðmundar Inga fyrir Afstöðu og í gistiskýlum fyrir heimilislausa:

„Hann er því mikilvæg fyrirmynd þeirra sem hefur skrikað fótur á beinu brautinni, en vilja berjast til betra lífs.“

Minnir Margrét á að Guðmundur Ingi hafi verið virkur í flokksstarfinu undanfarin ár og segir það heiður fyrir Samfylkinguna að fá hann á framboðslistann:

„Hann er akkúrat sú tenging við þá sem hafa átt undir högg að sækja í okkar samfélagi, sem flokkurinn þarfnast og á að berjast fyrir.“

Sammála

Nafntogað áhrifafólk í Samfylkingunni tekur undir með Margréti. Mörður Árnason fyrrum þingmaður flokksins vísar í grein hennar á Facebook-síðu sinni og skrifar:

„Sammála félaga mínum og samherja í áratug.“

Í athugasemdum taka fleiri flokksmenn undir.

Össur Skarphéðinsson fyrrum þingmaður, ráðherra og formaður flokksins:

„Frábær grein hjá Margréti! – Svo á nú eftir að samþykkja listann á fundi, eða hvað?!“

Björgvin G. Sigurðsson fyrrverandi þingmaður, ráðherra og framkvæmdastjóri Samfylkingarinnar hvetur til þess að Guðmundur Ingi fái pláss á listanum:

„Tek undir með félaga Möggu. Eindregið. Ná sáttum. Guðmundur náði hörku árangri og er talsmaður margra sem ekki eiga alla jafna raddir við háborðið.“

Guðmundur Andri Thorsson fyrrverandi þingmaður flokksins tekur einnig undir með Margréti og það sama gerir einn af núverandi þingmönnum Samfylkingarinnar, Sigmundur Ernir Rúnarsson:

„Vönduð skrif, sérlega.“

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 13 klukkutímum

Eigendur þriggja húsa lögðu borgina sem fór ekki eftir ákvæðum laga

Eigendur þriggja húsa lögðu borgina sem fór ekki eftir ákvæðum laga
Fréttir
Fyrir 13 klukkutímum

Guðrún: „Þung og sorgleg tíðindi“

Guðrún: „Þung og sorgleg tíðindi“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Fastus afhenti Brunavörnum Rangársýslu nýjan dælubíl

Fastus afhenti Brunavörnum Rangársýslu nýjan dælubíl
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Steinunn og Jacques urðu ástfangin við fyrstu kynni en leiðir skildu í 40 ár – „Höfum við ákveðið að týna ekki ástinni aftur, aldrei aftur“

Steinunn og Jacques urðu ástfangin við fyrstu kynni en leiðir skildu í 40 ár – „Höfum við ákveðið að týna ekki ástinni aftur, aldrei aftur“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Heimsfrægur trúður handtekinn á Keflavíkurflugvelli – „Þeir sögðu mér að taka farangurinn minn og fylgja þeim“

Heimsfrægur trúður handtekinn á Keflavíkurflugvelli – „Þeir sögðu mér að taka farangurinn minn og fylgja þeim“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Könnun Maskínu – Samfylkingin stærst í borginni – Vinstrið fær 2 fulltrúa

Könnun Maskínu – Samfylkingin stærst í borginni – Vinstrið fær 2 fulltrúa