fbpx
Sunnudagur 07.júní 2026
Fréttir

Árni í Járnborg ákærður fyrir skattalagabrot

Ágúst Borgþór Sverrisson
Sunnudaginn 7. júní 2026 09:30

Mynd: Facebook

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Árni B. Halldórsson hefur verið ákærður fyrir meiriháttar skattalagabrot í rekstri fyrirtækisins K 116 sem áður hét Járnborg. Árni var þar framkvæmdastjóri, stjórnarmaður og prókúruhafi.

Árni er annars vegar sakaður um að hafa ekki staðið skil á staðgreiðslu opinberra gjalda fyrir árin 2019 til 2021. Nema meint vanskil rúmlega 26 milljónum króna.

Hins vegar er hann sakaður um hafa staðið skil á efnislega röngum virðisaukaskattskýrslum fyrir sömu rekstrarár og nemur offramtalinn innskattur, samkvæmt ákæru, um 72,5 milljónum króna, og vanframtalinn útskattur rúmlega 15 milljónum króna.

Járnborg var byggingafyrirtæki sem sérhæfði sig í járnabindingum. Félagið var stofnað árið 2014 og úrskurðað gjaldþrota árið 2021.

Járnborg var í fréttum sumarið 2019 er eldsvoði varð í atvinnhúsnæði að Fornubúðum í Hafnarfirði degi áður en fyrirtækið átti að flytja inn í það, og varð ekki af flutningunum. Sjá nánar um málið hér.

Málið gegn Árna verður þingfest við Héraðsdóm Reykjaness 19. júní næstkomandi.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Mega ekki láta leigjandann borga fyrir málunina

Mega ekki láta leigjandann borga fyrir málunina
Fréttir
Í gær

Guðmundur Ingi lýsir afleiðingum af veikindunum – „Þarf þetta að vera svona?“

Guðmundur Ingi lýsir afleiðingum af veikindunum – „Þarf þetta að vera svona?“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Segir að Íslendingar ættu að vera sérlega stoltir af körfuboltalandsliðinu

Segir að Íslendingar ættu að vera sérlega stoltir af körfuboltalandsliðinu
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Dómari segir að Barbara hefði þurft að selja blíðu sína 12 manns til að fullyrðing Margrétar stæðist

Dómari segir að Barbara hefði þurft að selja blíðu sína 12 manns til að fullyrðing Margrétar stæðist