fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Fókus

66°Norður opnar Archive verslun í Kaupmannahöfn

Ragna Gestsdóttir
Föstudaginn 13. febrúar 2026 19:48

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

66°Norður opnaði nýja Archive verslun í Kaupmannahöfn um síðustu helgi. Verslunin er staðsett á Gammel Kongvej í Fredrikberg í hjarta dönsku höfuðborgarinnar. Fyrir er 66°Norður með verslanir á Sværtegade í miðborg Kaupmannahafnar og á Kastrup flugvell og þessi nýjasta Archive verslun er því sú þriðja sem íslenski fataframleiðandinn opnar í borginni.

Þetta er í fyrsta skipti sem 66°Norður opnar Archive verslun á erlendri grundu en fataframleiðandinn er með Archive verslun á Skólavörðustíg í Reykjavík. Í Archive versluninni býður 66°Norður upp á flíkur frá fyrri vörulínum og sýnishorn. Þar er einnig að finna sjaldgæfar notaðar vörur frá saumastofu 66°Norður og Rauða Krossinum á Íslandi.

Mynd: Lukas Bukoven
Mynd: Lukas Bukoven
Mynd: Lukas Bukoven
Mynd: Lukas Bukoven

,,Í 100 ár hafa Íslendingar látið reyna á gæði og endingu varanna okkar. Við höfum lengi endurnýtt afgangsefni og boðið upp á viðgerðarþjónustu frá upphafi, og með opnun 66°North Archive í Kaupmannahöfn er þessi skuldbinding enn frekar styrkt með því að gefa núverandi vörum nýtt líf,“  segir Helgi Rúnar Óskarsson, forstjóri 66°Norður.

,,Við opnuðum okkar fyrstu verslun í Kaupmannahöfn fyrir 12 árum síðan og það er sannarlega skemmtilegur tímapunktur að opna nýja verslun í borginni nú á 100 ára afmælisári 66°Norður.“

Mynd: Lukas Bukoven
Mynd: Lukas Bukoven
Mynd: Lukas Bukoven
Mynd: Lukas Bukoven
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 3 dögum

Urðar yfir nýlátinn leikara – „Hann var heigull sem níddist á mér“

Urðar yfir nýlátinn leikara – „Hann var heigull sem níddist á mér“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Bæjarstjóri Hafnarfjarðar fékk krefjandi spurningu á leik FH og Hauka

Bæjarstjóri Hafnarfjarðar fékk krefjandi spurningu á leik FH og Hauka
Fókus
Fyrir 4 dögum

Nýtt æði grípur um sig meðal íslenskra kvenna

Nýtt æði grípur um sig meðal íslenskra kvenna
Fókus
Fyrir 4 dögum

Heimsfrægur íslenskur tónlistarmaður sem fáir Íslendingar hafa heyrt um – 200 milljónir á Spotify

Heimsfrægur íslenskur tónlistarmaður sem fáir Íslendingar hafa heyrt um – 200 milljónir á Spotify
Fókus
Fyrir 5 dögum

Mate flytur sig um set

Mate flytur sig um set
Fókus
Fyrir 5 dögum

Áhrifaríkt verk til umræðu á Leikhúskaffi

Áhrifaríkt verk til umræðu á Leikhúskaffi