

Nwangene sló í gegn í þriðju þáttaröð The Voice í Nígeríu og var hún í hópi efnilegustu tónlistarmanna landsins.
Nwangene er sögð hafa verið í fastasvefni í íbúð sinni í höfuðborginni Abuja þegar hún vaknaði skyndilega við sáran verk í fætinum.
Hún áttaði sig fljótlega á því hvað hafði gerst og dreif sig til læknis en því miður var ekki til mótefni við eitrinu á umræddri læknastofu. Hún var því flutt á sjúkrahús en þar var aðeins til annað þeirra tveggja mótefna sem þurfti.
Þrátt fyrir tilraunir lækna til að bjarga lífi Nwangene lést hún á sjúkrahúsinu skömmu eftir komuna þangað. Dýraeftirlitsmenn voru sendir á heimili konunnar og fundust þar tveir baneitraðir snákar.