fbpx
Föstudagur 13.mars 2026
Fókus

58 ára en allir halda að hann sé miklu yngri: Engar lýtaaðgerðir, ekkert bótox – Þetta er leyndarmálið

Fókus
Mánudaginn 2. febrúar 2026 07:00

Brandao þegar hann var fertugur og svo þegar hann er tæplega sextugur.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Brasilíski áhrifavaldurinn Edson Brandao hefur vakið töluverða athygli á samfélagsmiðlum fyrir unglegt útlit sitt þrátt fyrir að vera farinn að nálgast sextugt.

Brandao, sem er 58 ára og verður 59 ára í febrúar, segir í viðtali við Daily Mail að margir haldi að hann sé á þrítugsaldri og að ókunnugir stöðvi hann reglulega til að spyrja um „leyndarmál“ æskunnar, eða geri jafnvel ráð fyrir að hann hafi farið í fegrunaraðgerðir. Þeim fullyrðingum vísar hann hins vegar alfarið á bug.

Að sögn Brandao felst „leyndarmálið“ ekki í lýtaaðgerðum eða snyrtivörumeðferðum heldur í stöðugum og einföldum lífsstílsvenjum. Hann segir lykilinn vera reglusemi í hreyfingu, heilbrigt og heilnæmt mataræði og einföld húðumhirðurútína.

Viðhorfið breyttist þegar hann varð fertugur

Brandao viðurkennir að hann hafi ekki alltaf lagt áherslu á heilsu. Hann segir að þegar hann varð fertugur hafi viðhorf hans breyst og hann áttað sig á því að öldrun væri að stórum hluta ekkert annað en afleiðing daglegra venja. Síðan þá hefur hann fylgt ströngu skipulagi í hreyfingu og mataræði.

Dagleg hreyfing er fastur liður í rútínu hans. Hann stundar bæði styrktarþjálfun og þolþjálfun og leggur áherslu á að reglusemi skipti meira máli en öfgar. Hann telur styrktaræfingar hjálpa sér að viðhalda góðri líkamsstöðu, orku og unglegu útliti, á meðan þolþjálfun stuðli að hjartaheilsu og andlegri skerpu.

Bent er á það í umfjöllun Daily Mail að vísindarannsóknir styðji mikilvægi slíkra æfinga. Rannsókn frá Mayo Clinic árið 2024 benti til þess að mótstöðuþjálfun gæti hægt á eða jafnvel snúið við aldurstengdum breytingum í vöðvaþráðum.

Þá sýndi önnur rannsókn sama ár fram á að styrktarþjálfun gæti bætt líkamsstöðu og dregið úr einkennum hryggskekkju, en slæm líkamsstaða getur haft neikvæð áhrif á lungnarými, blóðrás og almenna heilsu.

Óunnin matvæli og ávextir

Mataræði Brandao byggir að mestu á óunnum matvælum og ávöxtum. Hann segist forðast hvítt brauð, sykrað morgunkorn, steiktan mat, skyndibita, unninn ost, sælgæti, sykraða drykki og mikið unnar snakkvörur. Í staðinn leggur hann áherslu á fjölbreytt úrval ávaxta, svo sem ber, appelsínur og avókadó, auk matvæla á borð við lax, hvítlauk, túrmerik, hunang, lifur og egg.

Rannsóknir hafa fyrir löngu sannað það að ávextir eru ríkir af andoxunarefnum sem verja frumur líkamans gegn skemmdum af völdum sindurefna, sem geta haft áhrif á húð og kollagenframleiðslu. Omega-3 fitusýrur í fiski eru sagðar tengjast minni bólgum og hvítlaukur og túrmerik eru talin hafa jákvæð áhrif á ónæmiskerfið.

Húðumhirða Brandao er jafnframt einföld. Hann notar meðal annars frosnar gúrkusneiðar á andlitið til að draga úr bólgum og bjúg. Sérfræðingar hafa bent á að hátt vatnsinnihald gúrku geti stuðlað að auknum raka í húðinni.

Brandao segir útlit sitt og orku fyrst og fremst byggjast á einföldum en áhrifaríkum venjum. Að hans mati – þótt unglegur sé – snýst heilbrigður lífsstíll síður um að líta út fyrir að vera ungur heldur miklu frekar að viðhalda styrk, sjálfstrausti og lífsgleði óháð aldri.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 3 dögum

TikTok myndband segir að fólk fái tilkynningar þegar því er flett upp í Íslendingabók – En hvað er hið sanna?

TikTok myndband segir að fólk fái tilkynningar þegar því er flett upp í Íslendingabók – En hvað er hið sanna?
Fókus
Fyrir 3 dögum

Klæddi sig í 24 bleyjur og dýfði sér í Thames fljót til að mótmæla – Fékk lífshættulegan sjúkdóm

Klæddi sig í 24 bleyjur og dýfði sér í Thames fljót til að mótmæla – Fékk lífshættulegan sjúkdóm
Fókus
Fyrir 5 dögum

Þetta er barnaefnið sem olli Íslendingum martröðum

Þetta er barnaefnið sem olli Íslendingum martröðum
Fókus
Fyrir 5 dögum

Leikarinn segir komið að leiðarlokum eftir að hafa kennt sér meins í baki og mjöðm undanfarið

Leikarinn segir komið að leiðarlokum eftir að hafa kennt sér meins í baki og mjöðm undanfarið
Fókus
Fyrir 1 viku

Íslensku lögin sem Laufey segir að allir verði að hlusta á

Íslensku lögin sem Laufey segir að allir verði að hlusta á
Fókus
Fyrir 1 viku

Þetta verður fyrsti viðburður Þjóðaróperunnar

Þetta verður fyrsti viðburður Þjóðaróperunnar