fbpx
Föstudagur 17.apríl 2026
433Sport

Erlendur áhrifavaldur hafður að háði og spotti eftir heimsókn til Íslands – Myndband

Helgi Fannar Sigurðsson
Fimmtudaginn 12. mars 2026 18:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

David Jonathan Panka er knattspyrnumaður sem fæstir þekkja sennilega til, en hann er duglegur að birta myndbönd frá ævintýrum sínum á samfélagsmiðla. Hann heimsótti Ísland á dögunum.

Panka er 26 ára gamall Hollendingur og skrifaði hann fyrst undir samning við Waalwijk í meistaraflokki. Þaðan fór hann til Miedz Legnica í Póllandi en síðan hefur hann leikið með varaliðum Kansas City í Bandaríkjunum, Panathinaikos í Grikklandi og Herthu Berlin í Þýskalandi, auk þess sem hann lék með C-liði Werder Bremen. Hann var þá um stutt skeið hjá Doxa Katokopias á Kýpur undir lok síðasta árs.

Á dögunum fór hann á reynslu hjá Ægi í Þorlákshöfn. Birti hann myndband frá því er hann æfði með liðinu og fylgdist með því mæta Keflavík. Hann var ekki hrifinn af frammistöðu liðsins í þeim leik og sagði þá að þó Ægir hefði góða leikmenn þá skorti fagmennsku í kringum æfingar liðsins, menn mættu til að mynda aðeins fimm mínútum áður en þær hefðust. „Þetta var ekki fyrir mig,“ sagði hann jafnframt.

Hjá Ægi virðast menn þó heldur ekki hafa fundist mikið til Panka sjálfs koma. Leikmenn á mála hjá félaginu tjáðu sig á samfélagsmiðlum í kjölfar þess að Fótbolti.net skrifaði frétt um dvöl Panka hér á landi í gærkvöldi.

„Maður sem fer á klósettið i tíu mínútur á miðri æfingu án þess að láta þjálfara vita að segja að hann sé ekki hrifinn af fagmennskunni i kringum æfingarnar. Grín er þetta,“ skrifar Kristinn Ásgeir Þorbergsson. „Mikill söknuður af þessum,“ skrifar Arnar Logi Sveinsson.

Fleiri tóku til máls, þar á meðal hlaðvarpsstjarnan Gunnar Hilmar Kristinsson, Bomban. „Þvílíki trúðurinn“, skrifaði hann einfaldlega.

Myndbandið sem Panka birti frá dvölinni hér á landi er hér ofar.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Þetta er raunveruleg ástæða þess að Maguire fékk lengra bann

Þetta er raunveruleg ástæða þess að Maguire fékk lengra bann
433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Segir frá því af hverju Ronaldo henti honum út af Instagram

Segir frá því af hverju Ronaldo henti honum út af Instagram
433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Vini Jr urðaði yfir Bellingham – „Haltu kjafti og lokaðu á þér munninum“

Vini Jr urðaði yfir Bellingham – „Haltu kjafti og lokaðu á þér munninum“
433Sport
Fyrir 23 klukkutímum

Stjarna Arsenal fékk stórfurðulega spurningu eftir að liðið komst áfram í gær – Myndband

Stjarna Arsenal fékk stórfurðulega spurningu eftir að liðið komst áfram í gær – Myndband
433Sport
Í gær

Þarf að sætta sig við hressilega launalækkun í sumar

Þarf að sætta sig við hressilega launalækkun í sumar