fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Fókus

Byrjaði skyndilega að fá fullnægingu í pilates-tíma

Fókus
Föstudaginn 30. janúar 2026 20:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Fyrirsætan Sarah Lloyd opnar sig um óvenjulegt atvik sem hún lenti í á dögunum þegar hún var í pilates-tíma. Pilates hefur notið mikilla vinsælda á undanförnum árum, enda styrkir æfingakerfið einkum miðju líkamans, djúpvöðva kviðarins, rass, læri og mjaðmir.

Sarah er vön krefjandi æfingum og hefur hún meðal annars keppt í svokölluðum ofurhlaupum og mætir hún í ræktina á hverjum einasta degi.

„Ég æfi á hverjum degi; yfirleitt fer ég bara í ræktina sjálf, en stundum tek ég hóptíma,“ segir hún á Instagram.

New York Post segir frá því að í nýlegum pilates-hóptíma hafi hlutirnir einmitt æxlast á annan veg en hún bjóst við. Áköf og erfið kviðæfing varð til þess að hún byrjaði að fá fullnægingu.

„Við vorum að gera fótalyftur og eftir um það bil tíu endurtekningar fór ég að finna kitl í líkamanum,“ sagði hún og bætti svo við:

„Ég hugsaði: „Þetta er ekki alveg eðlileg tilfinning?“ Ég var sveitt og fann til svipaðrar tilfinningar og ég myndi venjulega finna fyrir í rúminu. Þegar ég tók eftir því að fullnægingin var að byggjast upp, panikaði ég og þurfti að hætta. Ég veit ekki hvort áköf öndunin hafi komið upp um mig. Augljóslega leið mér vel, en þetta var alls ekki tilfinning sem ég bjóst við að finna í ræktinni við að gera kviðæfingar.“

Í umfjöllun New York Post kemur fram að þetta fyrirbæri sé ekki óþekkt. Fyrirbærið kallast „coregasm“ og getur átt sér stað við ákafar æfingar þar sem kjarni líkamans er í brennidepli. Þegar kviður, mjaðmagrind og rassvöðvar eru spenntir af miklum krafti eykst blóðflæði og taugaörvun á sér stað á svæðum sem deila taugabrautum með kynfærum.

Í frétt New York Post er vísað í Dr. Debby Herbenick, kynlífsfræðing og höfund bókarinnar The Coregasm Workout, og segir hún að um 10% fólks upplifi þetta fyrirbæri.

„Tilfinningin er almennt eins og fullnæging í gegnum leggangaörvun, en hún er yfirleitt daufari, minna áköf og meira kitlandi,“ segir hún. Bætir hún við að þessi tegund fullnægingar komi yfirleitt fram við æfingar þar sem kvið- og kjarnavöðvar líkamans eru undir miklu álagi. „Fólk fær þetta yfirleitt ekki á þriðju eða fjórðu kviðkreppu heldur þegar kjarnavöðvarnir eru orðnir þreyttir.“

Lloyd, sem er frá Ástralíu, segist nú forðast það að fara í pilates af ótta við að lenda í því sama. „Ég er mjög skipulögð í þjálfuninni núna og veit nákvæmlega hvað ég er að gera í hverri lotu. Ég held mig við rútínu sem hentar mér og kemur í veg fyrir vandræðalegar aðstæður,“ segir hún og lítur einnig á spaugilegu hliðina.

„Maður býst ekki við svona óvæntum uppákomum út frá kviðæfingum en hér erum við. Ég get hlegið að þessu núna.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 3 dögum

Urðar yfir nýlátinn leikara – „Hann var heigull sem níddist á mér“

Urðar yfir nýlátinn leikara – „Hann var heigull sem níddist á mér“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Bæjarstjóri Hafnarfjarðar fékk krefjandi spurningu á leik FH og Hauka

Bæjarstjóri Hafnarfjarðar fékk krefjandi spurningu á leik FH og Hauka
Fókus
Fyrir 4 dögum

Nýtt æði grípur um sig meðal íslenskra kvenna

Nýtt æði grípur um sig meðal íslenskra kvenna
Fókus
Fyrir 4 dögum

Heimsfrægur íslenskur tónlistarmaður sem fáir Íslendingar hafa heyrt um – 200 milljónir á Spotify

Heimsfrægur íslenskur tónlistarmaður sem fáir Íslendingar hafa heyrt um – 200 milljónir á Spotify
Fókus
Fyrir 5 dögum

Mate flytur sig um set

Mate flytur sig um set
Fókus
Fyrir 5 dögum

Áhrifaríkt verk til umræðu á Leikhúskaffi

Áhrifaríkt verk til umræðu á Leikhúskaffi