fbpx
Sunnudagur 19.apríl 2026
Fréttir

Kvartaði yfir sekt fyrir að leggja í bílastæði fyrir fatlaða

Jakob Snævar Ólafsson
Föstudaginn 23. janúar 2026 08:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ónefndur eintsaklingur hafði ekki erindi sem erfiði vegna kvörtunar sem viðkomandi lagði fram til umboðsmanns Alþingis en kvartandinn hafði lagt bíl sínum í bílastæði sem er sérstaklega ætlað fötluðum og öðrum með stæðiskort fyrir hreyfihamlaða. Sagðist kærandinn hafa verið tilneyddur til að leggja í stæðið þar sem hann hefði verið að flytja hluti inn í íbúð en takmarkað aðgengi hafi verið að viðkomandi húsi. Umboðsmaður taldi hins vegar álagningu sektarinnar vera fyllilega í samræmi við lög.

Kvartandinn lagði sína kvörtun fram í desember síðastliðnum. Fram kom í kvörtuninni að Bílastæðasjóður Reykjavíkur hefði lagt sektina á vegna brots á ákvæðum  umferðarlaga sem mæla fyrir um bann við því að aðrir en þeir sem hafa undir höndum stæðiskort fyrir hreyfihamlaða stöðvi eða leggi ökutæki á merktu stæði fyrir ökutæki fatlaðs fólk. Sagði kvartandinn ástæðu þess að bifreiðinni var lagt í stæðið að hann hafi verið að flytja muni inn í nærliggjandi íbúð, en takmarkað aðgengi hafi að öðru leyti verið til að athafna sig við húsið. Með tölvupósti fyrr í þessum mánuði sendi kvartandinn síðan umboðsmanni myndir af aðstæðum við húsið.

Segir í bréfi umboðsmanns til kvartandans að hann hafi ekki andmælt því að bifreiðinni hafi verið lagt í stæðið þrátt fyrir að hann sé ekki með stæðiskort fyrir hreyfihamlaða. Í ljósi þessa og einnig þess að í umferðarlögum sé með skýrum hætti mælt fyrir um að eingöngu handhafa stæðiskorts fyrir hreyfihamlaða sé heimilt að leggja í bifreiðastæði sem ætlað sé fyrir fatlaða, telur umboðsmaður ekki tilefni til að gera athugasemdir við þá afstöðu Bílastæðasjóðs að bifreiðinni hafi verið lagt í andstöðu við áðurnefnd ákvæði umferðarlaga.

Kvartandinn hafði því ekki erindi sem erfiði.

 

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Kona misþyrmdi lögreglumönnum á heimili sínu á Selfossi

Kona misþyrmdi lögreglumönnum á heimili sínu á Selfossi
Fréttir
Í gær

Lagði fram kæru eftir uppákomu við setningu Alþingis

Lagði fram kæru eftir uppákomu við setningu Alþingis
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Pete Hegseth þekkti ekki muninn á Biblíunni og Pulp Fiction – Vandræðaleg stund í Pentagon

Pete Hegseth þekkti ekki muninn á Biblíunni og Pulp Fiction – Vandræðaleg stund í Pentagon
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Árásin á þorrablóti HK enn í rannsókn hjá lögreglu – Brotaþolinn varanlega skaddaður

Árásin á þorrablóti HK enn í rannsókn hjá lögreglu – Brotaþolinn varanlega skaddaður
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ráðuneytið bregst við uppnáminu á Suðurnesjum – Skólameistarinn hættur og nemendur gengu út

Ráðuneytið bregst við uppnáminu á Suðurnesjum – Skólameistarinn hættur og nemendur gengu út
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Samþykkja íbúðir við Austurvöll en ósammála um skilyrði – „Skipulag af þessu tagi hafi bakað vandræði“

Samþykkja íbúðir við Austurvöll en ósammála um skilyrði – „Skipulag af þessu tagi hafi bakað vandræði“