fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Fókus

Konu brugðið á veitingastað eftir að ókunnur maður rétti henni miða – „Eitthvað fyrir þig að hugsa um“

Kristinn H. Guðnason
Sunnudaginn 18. janúar 2026 20:30

Konunni var mjög brugðið að fá miðann.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Kona ein í Bretlandi er í losti eftir að hafa fengið miða afhentan frá ókunnugum manni á veitingastað. Það sem stóð á miðanum sló hana flata.

Greint er frá málinu í breska blaðinu The Mirror en það var eiginmaður konunnar sem sagði frá málinu á samfélagsmiðlum.

Konan sat með vini sínum á kaffihúsi í London og var í hrókasamræðum. Eftir um það bil 40 mínútur stendur ókunnugur maður upp frá borði þar rétt hjá, gengur að borðinu hennar, kastar miða á borðið og gengur svo út ásamt félaga sínum.

Var henni mjög brugðið við þetta og forvitin. Varð henni ekki síður brugðið við það sem stóð á miðanum.

„Hæ, ég veit ekki hvort þú ert meðvituð um það, hávær rödd þín er búin að vera alveg óþolandi fyrir okkur. Við höfum ekki getað talað saman þar sem við heyrum ekki í hvorum öðrum. Hins vegar hef ég heyrt hvert einasta orð af því sem þú hefur sagt – Við vitum meira að segja hvað kettirnir þínir heita. Þetta rými er fyrir fleiri en bara þig og því miður þurftum við að yfirgefa staðinn. Eitthvað fyrir þig að hugsa um.“

Segir hann að eiginkona sín hafi verið gjörsamlega miður sín eftir þessa uppákomu. Hafi hún sagst ætla að passa sig í framtíðinni.

Færslan hefur fengið töluverð viðbrögð. Segjast margir trúa því vel að konan hafi verið að tala of hátt.

„Ég myndi segja henni að það er til útirödd og innirödd og miðað við þessi viðbrögð þá var hún að nota útiröddina,“ sagði einn.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 dögum

Pink sögð skilin við eiginmanninn til 20 ára og bregst reið við – „Mynduð þið vilja segja börnunum okkar frá þessu?

Pink sögð skilin við eiginmanninn til 20 ára og bregst reið við – „Mynduð þið vilja segja börnunum okkar frá þessu?
Fókus
Fyrir 3 dögum

Dómari skipaði leikaranum að fara í meðferð eftir nýjasta uppátæki hans

Dómari skipaði leikaranum að fara í meðferð eftir nýjasta uppátæki hans
Fókus
Fyrir 3 dögum

Breski stórleikarinn sýndi sitt rétta eðli þegar ungur meðleikari varð fyrir áfalli

Breski stórleikarinn sýndi sitt rétta eðli þegar ungur meðleikari varð fyrir áfalli
Fókus
Fyrir 3 dögum

Urðar yfir nýlátinn leikara – „Hann var heigull sem níddist á mér“

Urðar yfir nýlátinn leikara – „Hann var heigull sem níddist á mér“
Fókus
Fyrir 5 dögum

Heimsfrægur íslenskur tónlistarmaður sem fáir Íslendingar hafa heyrt um – 200 milljónir á Spotify

Heimsfrægur íslenskur tónlistarmaður sem fáir Íslendingar hafa heyrt um – 200 milljónir á Spotify
Fókus
Fyrir 5 dögum

Raunveruleikastjarnan kveður niður þrálátan orðróm um kynhneigð eiginmannsins

Raunveruleikastjarnan kveður niður þrálátan orðróm um kynhneigð eiginmannsins
Fókus
Fyrir 5 dögum

Halle Berry opinberar það sem hún gerir ekki lengur í kynlífi

Halle Berry opinberar það sem hún gerir ekki lengur í kynlífi
Fókus
Fyrir 5 dögum

Prófessor í HÍ líkir áhyggjum af slaufun við siðfár

Prófessor í HÍ líkir áhyggjum af slaufun við siðfár