fbpx
Mánudagur 08.júní 2026
Fréttir

Safnar undirskriftum gegn sendiherraefni Trump á Íslandi – „Við viljum ekki svona mann“

Ritstjórn DV
Miðvikudaginn 14. janúar 2026 22:16

Billy Long Mynd/Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Jón Axel Ólafsson fjölmiðla- og athafnamaður hefur stofnað til undirskriftasöfnunar á Ísland.is en tilgangurinn með henni er að hvetja Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur utanríkisráðherra til að hafna því að Billy Long fái að taka við stöðu sendiherra Bandaríkjanna á Íslandi en Donald Trump forseti landsins hefur tilnefnt Long í embættið. Hefur Long sagt að Ísland ætti að verða 52. ríki Bandaríkjanna.

Tilnefningu Long þarf öldungadeild Bandaríkjaþings að staðfesta en það hefur dregist töluvert. Long á skrautlegan feril að baki. Hann var upphoðshaldari og síðan þingmaður í fulltrúadeildinni fyrir Missouri ríki en fékk stöðu yfirmanns Skattsins (IRS) eftir að Trump tók á ný við forsetaembættinu í upphafi síðasta árs. Hann missti hins vegar starfið eftir aðeins tvo mánuði og var þá tilnefndur í stöðu sendiherra á Íslandi en eins og DV greindi frá í ágúst í fyrra sáu almennir Bandaríkjamenn ástæðu til að biðja Íslendinga afsökunar á tilnefningunni.

Biðjast afsökunar á nýja sendiherranum á Íslandi – „Mér þykir þetta svo leitt“

Greint var frá því fyrr í dag að við yfirheyrslur á þingi vegna tilnefningarinnar hafi Long gantast með að Ísland yrði gert að 52. ríki Bandaríkjanna, með hann sem ríkisstjóra, en væntanlega hefur hann talið að Grænland yrði númer 51.

Móðgun

Sumum Íslendingum er hins vegar ekki skemmt og Jón Axel Ólafsson fjölmiðla- og athafnamaður hefur stofnað til undirskriftalista til að hvetja Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur utanríkisráðherra til að neita því að samþykkja Long sem sendiherra á Íslandi. Segir í yfirskrift undirskriftasöfnunarinnar að þessi orð Long gætu hafa verið sögð í hálfkæringi, en þau séu móðgandi fyrir Ísland og íslendinga, sem hafi þurft að berjast fyrir frelsi sínu og hafi ávallt verið vinaþjóð Bandaríkjanna:

„Við viljum að Þorgerður Katrín hafni Billy Long sem sendiherra á Íslandi og kalli eftir að Bandaríkin tilnefni annan mann, sem sýni Íslandi og Íslendingum meiri virðingu.“

Jón Axel skrifar á Facebook-síðu sína:

„Við viljum ekki svona mann sem sendiherra á Íslandi!“

Ljóst virðist því að Jón Axel hafi ekki verið alvara þegar hann fyrir um ári síðan nefndi 10 kosti við það að Bandaríkin myndu kaupa Ísland.

Nefnir tíu kosti við að Bandaríkin kaupi Ísland

Vín

Smári McCarthy fyrrverandi alþingismaður Pírata segir á Facebook síðu sinni að hann telji í ljósi orða Long tilefni til að Ísland hafni honum sem sendiherra Bandaríkjanna, á grundvelli 4. greinar Vínarsáttmálans. Það sé ekki góður eiginleiki í fari sendiherra, að þeir ásælist völd í landinu sem þeir séu fulltrúar síns lands gagnvart.

Þar á Smári væntanlega við Vínarsáttmálann um diplómatísk samskipti frá 1961 sem bæði Bandaríkin og Ísland eru aðilar að en samkvæmt 4. grein sáttmálans þarf ríki að fá samþykki frá móttökuríki fyrir sendiherraefni áður en það er sent þangað. Í greininni segir einnig að móttökuríkið geti hafnað sendiherraefninu og þurfi ekki að gefa upp neinar ástæður fyrir því.

 

Þegar þessi orð eru rituð hafa rétt yfir 80 manns sett nafn sitt á undirskriftalista Jón Axels.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Krefst svara um hvort mannréttindi séu brotin í almannatryggingakerfinu

Krefst svara um hvort mannréttindi séu brotin í almannatryggingakerfinu
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Málverkum stolið af sýningu í Bolholti um hábjartan dag

Málverkum stolið af sýningu í Bolholti um hábjartan dag
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Réttarhöld framundan í Edition-málinu – Sökuð um að hafa brugðið snöru um háls dóttur sinnar og stungið hana í hjartað

Réttarhöld framundan í Edition-málinu – Sökuð um að hafa brugðið snöru um háls dóttur sinnar og stungið hana í hjartað
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Davíð segir aðeins tímaspursmál þangað til annað ungmenni láti lífið: „Við þurfum að vakna og það núna“

Davíð segir aðeins tímaspursmál þangað til annað ungmenni láti lífið: „Við þurfum að vakna og það núna“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ósáttur við heilbrigðiseftirlitið, lögregluna og sýslumann – Hafi eyðilagt viðburð

Ósáttur við heilbrigðiseftirlitið, lögregluna og sýslumann – Hafi eyðilagt viðburð
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Vendingar í deilu Bríetar og Pálma – Frávísun vegna verulegra ágalla

Vendingar í deilu Bríetar og Pálma – Frávísun vegna verulegra ágalla
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Gagnrýnir gagnrýni Snorra – „Gerið betur en gervigreind kæra stjórnarandstaða. Lygarnar eru allar ykkar megin“

Gagnrýnir gagnrýni Snorra – „Gerið betur en gervigreind kæra stjórnarandstaða. Lygarnar eru allar ykkar megin“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Áslaug Arna fær stuðning og gagnrýni eftir umfjöllun um laun hennar – „Hjóla af hörku og hatri gegn konum“ – „Sjúga spena ríkisins“

Áslaug Arna fær stuðning og gagnrýni eftir umfjöllun um laun hennar – „Hjóla af hörku og hatri gegn konum“ – „Sjúga spena ríkisins“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Kvartaði vegna trúnaðarbrests í sveitarstjórn

Kvartaði vegna trúnaðarbrests í sveitarstjórn