fbpx
Laugardagur 02.maí 2026
Fréttir

Sigríður Margrét ráðin forstjóri Bláa lónsins

Einar Þór Sigurðsson
Þriðjudaginn 6. janúar 2026 13:22

Sigríður Margrét og Grímur. Mynd/Bláa lónið

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Sigríður Margrét Oddsdóttir hefur verið ráðin forstjóri Bláa Lónsins hf. frá 16. mars næstkomandi. Grímur Sæmundsen sem verið hefur forstjóri Bláa Lónsins hf. frá stofnun þess 1992 lætur þá af störfum en tekur sæti í stjórn félagsins á næsta aðalfundi.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá fyrirtækinu.

„Við bjóðum Sigríði Margréti velkomna til starfa. Ég tel þetta réttan tímapunkt fyrir félagið að ég stígi nú til hliðar sem forstjóri og feli öðrum að takast á við þær áskoranir og tækifæri sem eru fram undan og hlakka mjög til samstarfsins við Sigríði Margréti,” er haft eftir Grími í tilkynningunni.

„Ég tel það frábært tækifæri að fá að leiða starfsemi Bláa Lónsins hf. í samvinnu við stjórn félagsins og þann góða hóp sem starfar hjá félaginu, þau hafa byggt upp fyrirtæki sem er einstakt á heimsvísu. Ég sé ótal tækifæri í starfsemi félagsins og í íslenskri ferðaþjónustu sem verður mjög áhugavert og gaman að fá að takast á við á næstu árum,” er haft eftir Sigríði Margréti.

Um 800 starfsmenn starfa hjá Bláa Lóninu hf. Undir rekstur félagsins fellur samnefndur áfangastaður og tengd starfsemi á Reykjanesi, þar á meðal hótelin Retreat og Silica. Einnig á og rekur félagið Highland Base í Kerlingarfjöllum og er að byggja upp baðstað, hótel og alhliða ferðaþjónustu í Þjórsárdal auk þess að undirbúa uppbyggingu á Hoffelli í Hornafirði.

Þá á félagið hlutdeild í baðstöðunum Fontana við Laugarvatn, Jarðböðunum við Mývatn, Sjóböðunum á Húsavík og Vök á Egilsstöðum. Einnig hefur félagið á starfstíma sínum þróað og byggt upp húðvörufyrirtækið Blue Lagoon Skincare ehf, sem tekur nú fyrstu skrefin í alþjóðlegum vexti á þeim vettvangi.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Krafðist þess að fá hlutdeild í séreign látins sambýlismanns á grundvelli erfðaskrár – Hæstiréttur hefur nú lagt línurnar

Krafðist þess að fá hlutdeild í séreign látins sambýlismanns á grundvelli erfðaskrár – Hæstiréttur hefur nú lagt línurnar
Fréttir
Í gær

Ein helsta stjarna breskra stjórnmála sökuð um að taka málstað hryðjuverkamanns

Ein helsta stjarna breskra stjórnmála sökuð um að taka málstað hryðjuverkamanns
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Framboðið snúist ekki um lögheimilisskráningar – „Það þurfa allir að vera með rödd til að geta bætt og lagað sveitarfélagið“

Framboðið snúist ekki um lögheimilisskráningar – „Það þurfa allir að vera með rödd til að geta bætt og lagað sveitarfélagið“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Naut „stjaksetti“ einn frægasta nautabana Spánar á endaþarminum – Getur ekki sofið eða borðað

Naut „stjaksetti“ einn frægasta nautabana Spánar á endaþarminum – Getur ekki sofið eða borðað