fbpx
Laugardagur 02.maí 2026
433Sport

Högg í maga Ronaldo og félaga

Helgi Fannar Sigurðsson
Mánudaginn 22. desember 2025 13:00

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Al-Nassr, lið Cristiano Ronaldo, verið sett í félagaskiptabann frá FIFA rétt fyrir opnun janúargluggans.

FIFA uppfærði skrá sína á föstudag og þar kemur fram að sádiarabíska félagið megi ekki skrá nýja leikmenn frá og með 19. desember, en lokadagur bannsins er ekki tilgreindur.

Hefur það vakið óvissu innan félagsins. Fleiri sádiarabísk félög, þar á meðal Al-Shabab og Al-Riyadh, eru einnig á þessum sama lista FIFA.

Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Al-Nassr lendir í slíkum vandræðum. Árið 2023 fékk félagið sambærilegt bann vegna vangoldinna bónusa tengdra kaupum á Ahmed Musa frá Leicester.

Það mál var leyst með greiðslu og banninu fljótt aflétt, sem gefur til kynna að þetta mál megi leysa með svipuðum hætti.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 23 klukkutímum

Fundarhöld um helgina

Fundarhöld um helgina
433Sport
Í gær

Þetta er það sem stjörnurnar virðast spá mest í þegar þær koma til Íslands – „Maður er bara vanur því“

Þetta er það sem stjörnurnar virðast spá mest í þegar þær koma til Íslands – „Maður er bara vanur því“
433Sport
Í gær

Stefnir í harða baráttu á milli United og Arsenal

Stefnir í harða baráttu á milli United og Arsenal
433Sport
Í gær

Vill þjálfa aftur á Englandi

Vill þjálfa aftur á Englandi