
Fyrrum landsliðsfyrirliðinn Wayne Rooney telur að Declan Rice sé framtíðarfyrirliði enska landsliðsins eftir að hafa séð hann leiða Arsenal til 1-0 sigurs gegn Everton og aftur á topp úrvalsdeildarinnar.
Rooney var viðstaddur leikinn á Hill Dickinson leikvanginum á laugardagskvöldið og var sérstaklega hrifinn af frammistöðu Rice, sem stýrði leik Arsenal vel af miðjunni. Rice, sem er 26 ára og hefur leikið 72 landsleiki, hefur þegar borið fyrirliðaband Englands tvisvar í fjarveru Harry Kane.
„Fyrir mér er hann sá sem bíður eftir að Harry leggi skóna á hilluna. Hann var út um allan völl. Ákvarðanatakan, sendingarnar, smáatriðin, það var hreinlega unaðslegt að horfa á hann,“ sagði Rooney.
„Hann getur verið þriðji miðvörðurinn eina mínútuna og næstu er hann kominn í teiginn að reyna að skora. Sumt af því sem hann gerir er vanmetið. Drifkrafturinn, persónuleikinn og leiðtogahæfileikarnir eru til staðar. Allir sem þekkja hann elska hann. Hann er ómetanlegur fyrir England.“