fbpx
Laugardagur 02.maí 2026
433Sport

Ættu að ná í 41 árs gamlan leikmann til baka – Fáanlegur á frjálsri sölu

Victor Pálsson
Föstudaginn 19. desember 2025 21:12

Mynd: Instagram

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Fyrrum enski landsliðsmaðurinn Darren Bent er á því máli að Chelsea eigi að reyna að fá hinn 41 árs gamla Thiago Silva aftur til baka á næsta ári.

Silva er hafsent og spilar í dag í heimalandi sínu Brasilíu en hann er mjög vel metinn á meðal stuðningsmanna enska liðsins.

Chelsea hefur ekki verið sannfærandi varnarlega á tímabilinu og eru líkur á að einhver verði keyptur í næsta glugga.

Bent telur að Silva myndi hjálpa Chelsea þrátt fyrir aldurinn en fjölskylda hans býr í London í dag og spilar sonur hans fyrir yngri lið félagsins.

Silva hefur staðfest það að hann sé að kveðja Fluminense og er talið að hann vilji fara aftur til Englands.

,,Ef ég væri hjá Chelsea í dag þá myndi ég reyna að fá hann aftur inn og ef það er til að spila þá er það til að spila,“ sagði Bent.

,,Ég horfði á hann spila fyrir Fluminense á HM félagsliða og hann leit mjög vel út. Auðvitað er hann ekki jafn hraður því hann er kominn á aldur en hann hugsar hratt.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 23 klukkutímum

Fundarhöld um helgina

Fundarhöld um helgina
433Sport
Í gær

Þetta er það sem stjörnurnar virðast spá mest í þegar þær koma til Íslands – „Maður er bara vanur því“

Þetta er það sem stjörnurnar virðast spá mest í þegar þær koma til Íslands – „Maður er bara vanur því“
433Sport
Í gær

Stefnir í harða baráttu á milli United og Arsenal

Stefnir í harða baráttu á milli United og Arsenal
433Sport
Í gær

Vill þjálfa aftur á Englandi

Vill þjálfa aftur á Englandi