fbpx
Fimmtudagur 25.desember 2025
Fókus

Ellý sér ást í kortunum hjá Bríeti: „Það er eitthvað nýtt samband. Þau eru jafningjar og þeim líður vel“

Guðrún Ósk Guðjónsdóttir
Fimmtudaginn 25. desember 2025 15:00

Elllý Ármanns hefur mikla trú á Bríeti.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Það eru spennandi tímar fram undan hjá ástsælu söngkonunni Bríeti en hún var að gefa út fyrstu plötuna sína á ensku fyrir stuttu og með því að ryðja sér rúms á alþjóðlegum markaði. 

Spákonan og flugfreyjan spáði fyrir Bríeti í áramótaþætti Fókuss ásamt öðrum þekktum Íslendingum. Það kom aldeilis margt áhugavert fram í þættinum, sem má horfa á í heild sinni hér eða hlusta á Spotify og öllum helstu hlaðvarpsveitum. Hér að neðan má horfa á klippu úr þættinum þar sem Ellý spáir fyrir söngkonunni.

video
play-sharp-fill

Við spurðum spákonuna: „Hvernig verður næsta ár hjá Bríeti? Mun henni takast að koma tónlistinni út fyrir landsteinana?“

„Þetta tekst, en það eru mörg verkefni sem eru lögð fyrir hana. Hún er ný, hún er önnur en hún var. Það er eins og hún standi á vegamótum. Og hún er sýnd bara nakin og þegar fólk er sýnt nakið, mjög jákvætt, þá er hún önnur en hún var. Hún er ekki klædd í sömu… hún er ekki með sama farangur og hún var með. Hún er önnur. Hún er ekki að taka með sér einhverjar gamlar kápur,“ segir Ellý.

„Þannig að hún er búin að losa sig við þær og nú heldur hún áfram sem ný. Það er alls konar lagt í götur hennar. Í maí mánuði árið 2026 mun stjarna hennar skína skært. Og ekki bara á Íslandi. Þannig að hún þarf að jarðtengja sig þegar þetta gerist.“

„Af því að oft þegar velgengnin kemur þá koma önnur verkefni sem þú þarft að tækla. Og þessi hæfileikaríka stúlka, það er svo bjart í kringum hana. Hún setur mörk og hún er að ryðja einhverja braut. Þetta er bara, þetta verður dásamlegt.“

Horfðu á spá Ellýjar fyrir Bríeti hér að ofan, en spákonan segir að stjarna söngkonunnar muni skína áfram skært, en ekki nóg með það þá sé ástin að banka upp á.

„Það er eitthvað nýtt samband sem hún er, þau eru jafningjar og þeim líður vel,“ segir hún.

Fylgdu Ellý á Instagram og TikTok.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 dögum

Eldaðu safaríkan hamborgarhrygg eins og stjörnukokkurinn Guðmundur – „Þetta snýst allt um hitagráður“

Eldaðu safaríkan hamborgarhrygg eins og stjörnukokkurinn Guðmundur – „Þetta snýst allt um hitagráður“
Fókus
Fyrir 2 dögum

Fyrstu myndirnar af Netflix-stórmynd Baltasar Kormáks – Stórstjörnur í aðalhlutverkum

Fyrstu myndirnar af Netflix-stórmynd Baltasar Kormáks – Stórstjörnur í aðalhlutverkum
Fókus
Fyrir 3 dögum

Eva heimsótti ömmu sína á fæðingardeildina – „Ætli það sé ekki svolítið spes“

Eva heimsótti ömmu sína á fæðingardeildina – „Ætli það sé ekki svolítið spes“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Jólagestir féllu misvel í kramið hjá áhorfendum – „Langar mest að labba út“

Jólagestir féllu misvel í kramið hjá áhorfendum – „Langar mest að labba út“
Fókus
Fyrir 5 dögum

Könnun: Hvað ætlarðu að hafa í jólamatinn?

Könnun: Hvað ætlarðu að hafa í jólamatinn?
Fókus
Fyrir 5 dögum

Margrét Sól: Sagði upp verkfræðistarfinu hjá Össuri til að elta drauminn

Margrét Sól: Sagði upp verkfræðistarfinu hjá Össuri til að elta drauminn
Hide picture