
Manchester United og West Ham skildu jöfn í síðasta leik umferðarinnar í ensku úrvalsdeildinni.
Markalaust var í næstum klukkustund en þá kom Diogo Dalot United yfir og útlitið gott fyrir heimamenn á Old Trafford.
Þeir héldu þó ekki út því Soungoutou Magassa jafnaði metin fyrir Hamranna á 83. mínútu og þar við sat, 1-1.
United er í áttunda sæti með 22 stig en West Ham er í fallsæti eftir umferðina og vantar tvö stig upp í Leeds, sem er í síðasta örugga sætinu.