fbpx
Miðvikudagur 29.apríl 2026
433Sport

Telur að Arteta gæti hætt með Arsenal næsta sumar ef allt gengur upp

Hörður Snævar Jónsson
Fimmtudaginn 4. desember 2025 12:00

Mikel Arteta, knattspyrnustjóri Arsenal / GettyImages

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Mikel Arteta gæti yfirgefið Arsenal með stæl ef liðið nær loks að vinna titil á þessari leiktíð. Þessu heldur fyrrum leikmaður félagsins fram.

Arsenal hefur ekki unnið stóran bikar síðan FA-bikarinn fór á loft árið 2020, en staðan er björt núna, liðið trónir á toppi bæði ensku úrvalsdeildarinnar og Meistaradeildarinnar, og er komið í fjórðungsúrslit deildarbikarsins.

Arteta á rúmt eitt eitt hálft eftir af samningi sínum, en Emmanuel Petit, fyrrverandi leikmaður Arsenal, telur að Spánverjinn gæti gengið í burtu í sumar ef tímabilið endar með titli.

Petit, sem vann tvennuna með Arsenal 1998, segir að Arteta gæti leitað aftur heim til Spánar og sérstaklega til Barcelona, þar sem hann ólst upp sem leikmaður.

„Arteta gæti freistast af því að snúa aftur til Spánar, sérstaklega til félags sem hann þekkti sem ungur leikmaður,“
sagði Petit við Snabbare.

„Ef hann vinnur titil í vor gæti hann hugsað: ‘Ég hef lokið verkefninu eftir nær sjö ár. Tími til kominn að prófa eitthvað nýtt.’“

Petit bætir við að ef Barcelona banki upp á sé erfitt að hafna slíku tækifæri. „Það er eitt stærsta félag heims og lífsstíllinn hentar fjölskyldunni vel.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Svona gæti byrjunarklið Real Madrid litið út undir stjórn Mourinho

Svona gæti byrjunarklið Real Madrid litið út undir stjórn Mourinho
433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Bendir á vandamál í leik Arsenal – Leikmaður að í vitlausu hlutverki

Bendir á vandamál í leik Arsenal – Leikmaður að í vitlausu hlutverki
433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

Gæti komið óvænt búbót í bókhaldið hjá United í sumar

Gæti komið óvænt búbót í bókhaldið hjá United í sumar
433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

Rooney hjólar nokkuð fast í Harry Kane eftir þessi ummæli hans í gær

Rooney hjólar nokkuð fast í Harry Kane eftir þessi ummæli hans í gær