fbpx
Miðvikudagur 29.apríl 2026
433Sport

Átta aðilar sem ÍBV gæti reynt að fá eftir óvænta uppsögn Þorláks í gærkvöldi

433
Fimmtudaginn 4. desember 2025 12:30

Eiður Smári Guðjhonsen og Sigurvin stýrðu báðir FH sumarið 2022. Mynd/Eythor Arnason

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Forráðamenn knattspyrnudeildar ÍBV þurfa að finna þjálfara eftir að Þorlákur Árnason sagði mjög óvænt upp störfum í gærkvöldi. Þorlákur var ósáttur með ráðningu á framkvæmdarstjóra knattspyrnudeildar.

Alex Freyr Hilmarsson leikmaður liðsins var ráðinn í starfið á dögunum og þrátt fyrir að Þorlákur hafi ekki sett sig upp á móti ráðningu hans fór hún illa í hann.

Ljóst er að tímasetningin á uppsögn Þorláks kemur sér illa við ÍBV en kostir eins og Heimir Guðjónsson, Davíð Smári Lamude og Gunnar Heiðar Þorvaldsson eru allir búnir að ráða sig í Lengjudeildina.

Ljóst má vera að allir þeir hefðu sýnt því áhuga að taka við ÍBV.

Hins vegar er nóg af kostum í boði, nokkrir eru lausir og þá gæti ÍBV farið þá leið að kaupa upp samnings þjálfara sem er nú þegar í starfi.

Eiður Smári Guðjohnsen
Virðist hafa sýnt því áhuga að fara að þjálfa aftur, fór í viðræður við Selfoss á dögunum og var á blaði hjá HK og Val þegar þau voru að leita sér að nýjum þjálfara. Gæti kveikt mikið líf í kringum lið ÍBV.

Srdjan Tufegdžić
Var rekinn frá Val en hefur mikla og góða reynslu, þekkir það vera með lið í neðri hluta deildarinnar sem gæti reynst mikilvægt fyrir ÍBV.

Ejub Purisevic
Hefur gert frábærlega með lið á landsbyggðinni, klókur þjálfari sem gæti reynst ÍBV happafengur.

Ejub Purisevic

Haraldur Hróðmarsson
Vann við erfiðar aðstæður í Grindavík þar sem félagið var án heimavallar um langt skeið, gæti verið spennandi ráðning fyrir ÍBV.

Jón Þór Hauksson
Þrátt fyrir erfitt sumar hjá Jóni hefur hann sannað ágæti sitt sem frábær þjálfari, kostur sem Eyjamenn gætu svo sannarlega skoðað.

Bjarni Jóhannsson
Þessi reyndi þjálfari er án starfs, hefur í tvígang stýrt ÍBV. Allt er þegar þrennt eins og segir í kvæðinu góða.

Jóhann Birnir t.v

Jóhann Birnir Guðmundsson
Er í starfi hjá ÍR en hefur unnið kraftaverk þar, ætti skilið tækifæri á stærsta sviðinu í Bestu deild karla.

Sigurvin Ólafsson
Með mikla teningu til Eyja enda fæddur og uppalinn þar, hefur gert frábærlega með Þrótt síðustu sumur og hefur verið orðaður við störf í Bestu deildinni.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Svona gæti byrjunarklið Real Madrid litið út undir stjórn Mourinho

Svona gæti byrjunarklið Real Madrid litið út undir stjórn Mourinho
433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Bendir á vandamál í leik Arsenal – Leikmaður að í vitlausu hlutverki

Bendir á vandamál í leik Arsenal – Leikmaður að í vitlausu hlutverki
433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

Gæti komið óvænt búbót í bókhaldið hjá United í sumar

Gæti komið óvænt búbót í bókhaldið hjá United í sumar
433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

Rooney hjólar nokkuð fast í Harry Kane eftir þessi ummæli hans í gær

Rooney hjólar nokkuð fast í Harry Kane eftir þessi ummæli hans í gær