

Robert Plant, best þekktur sem söngvari rokksveitarinnar Led Zeppelin, hafnaði hlutverki í þáttaröðinni Game of Thrones vegna Íslandstengingar þáttanna.
Í tímaritinu Parade er greint frá því að Plant hafi verið boðið hlutverk í þáttunum vinsælu. En hann er mikill aðdáandi fantasía, einkum verk rithöfundarins J.R.R. Tolkien. Heyra má vísanir í þessa heima í lögum Led Zeppelin á borð við „Ramble On“ og „The Battle of Evermore.“
Plant sagði hins vegar nei takk. Ástæðan var Íslandstenging þáttanna.
„Ég vildi ekki vera sífellt settur í hlutverk ákveðinnar týpu,“ sagði Plant. „Ég byrjaði á þessu. Alveg frá laginu „Immigrant Song“ og að Led Zeppelin var boðið af íslensku ríkisstjórninni að koma á menningarviðburð.“
Tónleikar Led Zeppelin í Laugardalshöll árið 1970 voru hluti af Listahátíð í Reykjavík og téð lag var samið undir áhrifum frá Íslandi.
Eins og flestir vita var Ísland eitt af tökulöndum þáttanna Game of Thrones, ásamt Marokkó og Króatíu.
„Ég elska vestur evrópska sögu frá bronsöld upp að gömlu trúnni… þegar við vorum í tengslum við jörðina okkar,“ sagði Plant. „Svo er það þessir víkingar, þessi hugmynd um að fara til Íslands og upplifa náttúruna og fólkið. Já, ég hef margt til að svara fyrir, af því að ég hef aldrei séð jafn mörg bönd með tvöfaldar axir.“
Plant hefði ekki verið eini frægi tónlistarmaðurinn til að koma fram í þáttunum hefði hann þáð boðið. En í þeim mátti meðal annars sjá Ed Sheeran og Sigur Rós koma fram.