
Því er haldið fram á Spáni að Sunderland hafi áhuga á að kaupa miðjumanninn Fermin Lopez frá Barcelona.
Samkvæmt þessum afar óvæntu sögusögnum eru nýliðarnir, sem eru að gera frábæra hluti í ensku úrvalsdeildinni, til í að greiða yfir 70 milljónir punda fyrir Lopez.
Lopez, sem er 20 ára gamall, hefur gert vel á þessari leiktíð og hefur hann einnnig verið orðaður við fleiri ensk félög.
Það er þó óljóst hvort Sunderland hafi fjárhagslega burði til að klára kaup og samning leikmanns á borð við Lopez.