fbpx
Þriðjudagur 11.nóvember 2025
Fókus

89 ára næringarfræðingur varpar ljósi á hvað hún borðar til að halda heilsunni góðri

Fókus
Þriðjudaginn 11. nóvember 2025 06:30

Marion Nestle. Mynd/Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Marion Nestlé, matar- og næringarfræðingur, er líklega einn áhrifamesti og virtasti fræðimaður Bandaríkjanna á sínu sviði. Þó hún sé orðin 89 ára er hún enn í fullu fjöri og gaf hún til dæmis nýlega út bókina What to Eat Now: The Indispensable Guide to Good Food, How to Find It, and Why It Matters.

Marion er fædd árið 1936 og er prófessor emeritus við New York University. Hún er meðal annars þekkt fyrir að afhjúpa hvernig matvælaiðnaðurinn mótar næringarráðleggingar og almennar hugmyndir fólks um hvað sé heilbrigt.

Í viðtali við The Washington Post í tilefni af nýju bókinni fór Marion um víðan völl og varpaði meðal annars ljósi á það hvað hún borðar sjálf á dæmigerðum degi.

Morgunmatur:

Marion segist fá sér tvo bolla af „mildu” kaffi með mjólk en engum sykri. Þá hafragrautur eða Shredded Wheat sem er ekki ósvipað og Weetabix. Þá fær hún sér ferskan ávöxt með. Í viðtalinu kemur fram að Marion sé ekki þeirrar skoðunar að morgunmaturinn sé mikilvægasta máltíð dagsins.

Hádegismatur:

Marion segir að hádegismaðurinn hjá henni sé mjög óreglulegur. Stundum fær hún sér salat og stundum einfaldlega það sem er til heima hjá henni – grænmeti, ávextir úr garðinum, ostur, hnetur eða brauð.

Kvöldmatur:

Marion segir að hann sé einnig sveigjanlegur og líkist ef til vill hádegismatnum. „Ég borða bara ekki mikið. En ég er mjög hrifin af salötum og get fengið mér það tvisvar á dag. Ef ég er heima gæti ég fengið mér egg, kannski kex og ost með því. Mér finnst gaman að búa til máltíðir út frá því sem ég á heima hjá mér,” segir hún. Hún borðar líka stundum úti en segir að grænmeti sé alltaf í aðalhlutverki.

Í viðtalinu, sem má lesa hér, talar Nestle einnig um að forðast unnin matvæli eins og hægt er en leyfa sér stundum góðgæti á borð við ís.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 dögum

Matvörurnar sem eru hættar í framleiðslu en Íslendingar sakna

Matvörurnar sem eru hættar í framleiðslu en Íslendingar sakna
Fókus
Fyrir 2 dögum

Helena hættir við þátttöku í Miss Universe í Tælandi vegna veikinda

Helena hættir við þátttöku í Miss Universe í Tælandi vegna veikinda
Fókus
Fyrir 3 dögum

Óvæntur hæfileiki Ungfrú Síle slær í gegn – Sjáðu myndbandið

Óvæntur hæfileiki Ungfrú Síle slær í gegn – Sjáðu myndbandið
Fókus
Fyrir 3 dögum

Þjálfarinn Valentína: Ef þú ert ekki að ná markmiðum þínum þá eru líklegast þessir þrír hlutir að klikka hjá þér

Þjálfarinn Valentína: Ef þú ert ekki að ná markmiðum þínum þá eru líklegast þessir þrír hlutir að klikka hjá þér