fbpx
Miðvikudagur 29.apríl 2026
433Sport

Beittur Höddi Magg vill senda nokkra einstaklinga á námskeið í skynsemi – „Fóru á taugum, hverju sem er um að kenna“

433
Mánudaginn 27. október 2025 08:30

Hörður Magnússon.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Íþróttalýsandinn ástsæli Hörður Magnússon segir að einhverjir stjórnarmenn knattspyrnuliða þurfi að líta í eigin barm eftir tímabilið í Bestu deild karla.

Mikið hefur gengið á á bak við tjöldin í stórum félögum hér heima. Það hefur mikið gagnrýnt hvernig Valur skildi við Sigurð Egil Lárusson, leikmann sinn til 13 ára, eftir að ljóst var að hann fengi ekki nýjan samning.

Þá hefur stjórn Vals sömuleiðis fengið gagnrýni fyrir að fara á bak við Túfa þjálfara sinn og leitað að nýjum manni í starfið án hans vitneskju. Þá eru ekki allir FH-ingar sáttir við hvernig félagið sagði skilið við Heimi Guðjónsson, í annað sinn á nokkrum árum, og að hann hafi ekki verið látinn vita fyrr að hann fengi ekki nýjan samning.

Fréttir um brottrekstur Halldórs Árnasonar frá Breiðabliki og meinta óeiningu á bak við tjöldin í Kópavoginum er kom að nýjum samningi sem hann skrifaði undir í águst og fleira hafa þá flogið hátt. Hörður nefndi þá brottrekstur Davíðs Smára Lamude frá Vestra einnig.

„Einhverjir stjórnarmenn knattspyrnudeilda í Bestu deildinni virðast þurfa að fara á skynsemisnámskeið og almenn mannauðsstjóra námskeið líka,“ sagði Hörður beittur í íþróttafréttum á RÚV í gær.

„Stjórnarmenn fóru svolítið á taugum, hverju sem er um að kenna. Það er auðvitað mikið undir,“ sagði hann enn fremur.

Bestu deildinni lauk í gær. Stóð Víkingur auðvitað uppi sem meistari. Valur og Stjarnan hrepptu Evrópusætin ásamt þeim, sem og Vestri fyrir að verða bikarmeistari, en liðið féll sömuleiðis með Aftureldingu.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Samþykkir nýjan samning og Bruno Fernandes er næstur

Samþykkir nýjan samning og Bruno Fernandes er næstur
433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Þessir hafa verið bestir í Bestu deildinni

Þessir hafa verið bestir í Bestu deildinni
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Fundarhöld á næstunni og Gerrard gæti verið á leið í þjálfun á Englandi

Fundarhöld á næstunni og Gerrard gæti verið á leið í þjálfun á Englandi
433Sport
Fyrir 19 klukkutímum

Vilja losna við 9 milljarða fjárfestingu sína eftir aðeins nokkra mánuði

Vilja losna við 9 milljarða fjárfestingu sína eftir aðeins nokkra mánuði
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Hafna beiðni City sem þurfa að spila þétt um miðjan næsta mánuð

Hafna beiðni City sem þurfa að spila þétt um miðjan næsta mánuð
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Ótrúleg endurkoma Mourinho í kortunum í sumar – Forsetinn vill ráða hann

Ótrúleg endurkoma Mourinho í kortunum í sumar – Forsetinn vill ráða hann
433Sport
Í gær

Hugsi yfir breytingum á þessu ári – „Ég ætla að vona að maður endi ekki sem DV fyrirsögn“

Hugsi yfir breytingum á þessu ári – „Ég ætla að vona að maður endi ekki sem DV fyrirsögn“
433Sport
Í gær

Bellingham sakaður um ömurlegan leikaraskap um helgina

Bellingham sakaður um ömurlegan leikaraskap um helgina