Minningarathöfn um pólitíska aktívistann Charlie Kirk fór fram í Arizona í gær, sunnudag, að við stöddu fjölmenni. Fjölmargir áhrifamenn héldu tölu á athöfninni sem stóð yfir í fimm klukkustundir. Þar vakti ræða Eriku Kirk, ekkju Charlie, mesta athygli og sér í lagi fyrir þá þá staðreynd að hún kvaðst fyrirgefa morðingjanum, Tyler James Robinson.
Donald Trump, Bandaríkjaforseti, lokaði síðan athöfninni með 45 mínútna ávarpi sem hefur ekki síður vakið athygli. Eflaust hafa einhverjir haldið að forseti þjóðarinnar myndi reyna að tala á svipuðum nótum og hin syrgjandi ekkja til þess að lægja öldurnar í bandarísku þjóðfélagi en forsetinn fór í þveröfuga átt.
„Hann hataði ekki óvini sína, hann vildi þeim vel,“ sagði Trump meðal annars um Kirk í ávarpinu og jós hann lofi. „Varðandi þetta atriði er ég ósammála Charlie. Ég hata andstæðinga mína. Og ég vil þeim ekki vel,“ sagði Trump og fór síðan á mikið flug.
Sagðist forsetinn meðal annars ætla að herja á öfgahópa á vinstri væng bandarískra stjórnmálanna og lét fjölmiðla og frjálsynda Bandaríkjamenn heyra það. Þá fór hann meðal annars í þá lífseigu samsæriskenningu sína að Demókratar „hafi stolið“ forsetakosningunum árið 2020,
Pólitískir greinendur telja hins vegar að athöfnin hafi mögulega boðað vatnaskil til framtíðar í bandarískum stjórnmálum. Athöfnin var nánast trúarleg eðlis og gæti boðað í hvaða átt MAGA-hreyfing Trump gæti þróast eftir að hann yfirgefur hið pólitíska svið. Þá er ljóst að TurningPoint USA, samtökin sem Kirk stofnaði, gætu orðið enn öflugra pólitísk afl til framtíðar byggt á píslarvættisdauða stofnandans.
Erika Kirk, ekkja hans, er nýr leiðtogi hreyfingarinnar og telja margir að hún gæti látið verulega að sér kveða í bandarískum stjórnmálum á næstu árum.