fbpx
Miðvikudagur 29.apríl 2026
433Sport

Lýsir átökum sínum við Hemma Hreiðars – „Öfugt við hann gat ég allavega beðist afsökunar“

433
Sunnudaginn 14. september 2025 07:30

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Guðjón Pétur Lýðsson er að leggja skóna á hilluna eftir meira en 500 leiki á Íslandi, tvo Íslandsmeistaratitla, bikarmeistaratitil og fleira til. Guðjón fór yfir sviðið með Helga Fannari Sigurðssyni í Íþróttavikunni hér á 433.is.

Guðjón lék með ÍBV frá 2021 til 2022 og leið vel þar. Hann fór til Grindavíkur eftir mál sem kom upp er sneri að þjálfaranum Hermanni Hreiðarssyni.

„Mér leið mjög vel í Eyjum og ég er svosem alltaf þarna ennþá. Ég keypti gamalt hótel og við erum að reka það áfram,“ sagði Guðjón í þættinum.

Á tímabilinu 2022 sauð upp úr milli Guðjóns og Hermanns er sá fyrrnefndi var tekinn af velli í leik.

„Ég bíð enn eftir afsökunarbeiðni frá honum, að fara enni í enni við leikmann er skrýtið. Það er hans taktík. Ég var bara pirraður á því að fara út af. Ég sagði ekki neitt en hristi hausinn. Hann hafði ekki húmor fyrir því,“ rifjaði Guðjón upp.

„Öfugt við hann gat ég allavega beðist afsökunar fyrir minn hlut í þessu, hann gat það ekki. Það var haldinn fundur daginn eftir þar sem var sagt að ef ég myndi biðjast afsökunar opinberlega yrði þetta mál búið en svo var það ekki þannig.“

Sem fyrr segir hafði Guðjón ekki í hyggju að fara frá ÍBV á þessum tíma.

„Mér leið mjög vel í Eyjum og vildi mikið vera áfram. Ég lagði líka mikið á mig til að breyta hans skoðun en hann átti mjög erfitt með það.“

Viðtalið í heild er í spilaranum og á helstu hlaðvarpsveitum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Samþykkir nýjan samning og Bruno Fernandes er næstur

Samþykkir nýjan samning og Bruno Fernandes er næstur
433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Þessir hafa verið bestir í Bestu deildinni

Þessir hafa verið bestir í Bestu deildinni
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Fundarhöld á næstunni og Gerrard gæti verið á leið í þjálfun á Englandi

Fundarhöld á næstunni og Gerrard gæti verið á leið í þjálfun á Englandi
433Sport
Fyrir 19 klukkutímum

Vilja losna við 9 milljarða fjárfestingu sína eftir aðeins nokkra mánuði

Vilja losna við 9 milljarða fjárfestingu sína eftir aðeins nokkra mánuði
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Hafna beiðni City sem þurfa að spila þétt um miðjan næsta mánuð

Hafna beiðni City sem þurfa að spila þétt um miðjan næsta mánuð
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Ótrúleg endurkoma Mourinho í kortunum í sumar – Forsetinn vill ráða hann

Ótrúleg endurkoma Mourinho í kortunum í sumar – Forsetinn vill ráða hann
433Sport
Í gær

Hugsi yfir breytingum á þessu ári – „Ég ætla að vona að maður endi ekki sem DV fyrirsögn“

Hugsi yfir breytingum á þessu ári – „Ég ætla að vona að maður endi ekki sem DV fyrirsögn“
433Sport
Í gær

Bellingham sakaður um ömurlegan leikaraskap um helgina

Bellingham sakaður um ömurlegan leikaraskap um helgina