fbpx
Mánudagur 08.júní 2026
Fréttir

Bíræfinn íslenskur svikahrappur fór heim til eldri borgara og þóttist vera frá Microsoft

Ritstjórn DV
Miðvikudaginn 3. september 2025 15:08

Höfuðstöðvar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu greinir frá því í tilkynningu að íslenskur karlmaður hafi farið nýlega á heimili eldri borgara í umdæmi hennar og þóst vera starfsmaður Microsoft. Þannig hafi honum tekist að hafa umtalsverða fjármuni af fólkinu.

Í tilkynningunni segir að málið sé rannsakað sem fjársvikamál. Maðurinn hafi sagt við eldri borgaranna að hann væri starfsmaður Microsoft og vera kominn þeim til aðstoðar. Honum hafi verið hleypt inn og veittur aðgangur að tölvu þar sem hann millifærði umtalsverða fjármuni af bankareikningum heimilisfólksins.

Í tilkynningunni segir að þetta sé alvarleg þróun frá hefðbundnum Microsoft símasvindlum þar sem fjársvikararnir séu nú farnir að fá að því er virðist innlenda aðila til að fara inn á heimili fólks í stað þess að hringja.

Lögreglan hvetur alla til að vera á varðbergi gagnvart slíkum fjársvikum  og vill minna á að starfsmenn Microsoft koma aldrei óumbeðnir heim til einstaklinga, óska aldrei eftir aðgangi að tölvum, símtækjum, iPad eða bankareikningum og biðja aldrei um persónulegar upplýsingar í gegnum síma.

Lögreglan bendir þeim á sem hafa orðið fyrir fjársvikum að hafa strax samband við bankann sinn, hafa samband við lögreglu í síma 444-1000 og safna saman öllum upplýsingum um atvikið og senda á netfangið cybercrime@lrh.is.

Að lokum kemur fram í tilkynningunni að lögreglan sé með málið til rannsóknar og hvetji alla sem kunni að hafa orðið fyrir álíka fjársvikum til þess að hafa samband.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Krefst svara um hvort mannréttindi séu brotin í almannatryggingakerfinu

Krefst svara um hvort mannréttindi séu brotin í almannatryggingakerfinu
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Málverkum stolið af sýningu í Bolholti um hábjartan dag

Málverkum stolið af sýningu í Bolholti um hábjartan dag
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Réttarhöld framundan í Edition-málinu – Sökuð um að hafa brugðið snöru um háls dóttur sinnar og stungið hana í hjartað

Réttarhöld framundan í Edition-málinu – Sökuð um að hafa brugðið snöru um háls dóttur sinnar og stungið hana í hjartað
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Davíð segir aðeins tímaspursmál þangað til annað ungmenni láti lífið: „Við þurfum að vakna og það núna“

Davíð segir aðeins tímaspursmál þangað til annað ungmenni láti lífið: „Við þurfum að vakna og það núna“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ósáttur við heilbrigðiseftirlitið, lögregluna og sýslumann – Hafi eyðilagt viðburð

Ósáttur við heilbrigðiseftirlitið, lögregluna og sýslumann – Hafi eyðilagt viðburð
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Vendingar í deilu Bríetar og Pálma – Frávísun vegna verulegra ágalla

Vendingar í deilu Bríetar og Pálma – Frávísun vegna verulegra ágalla
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Gagnrýnir gagnrýni Snorra – „Gerið betur en gervigreind kæra stjórnarandstaða. Lygarnar eru allar ykkar megin“

Gagnrýnir gagnrýni Snorra – „Gerið betur en gervigreind kæra stjórnarandstaða. Lygarnar eru allar ykkar megin“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Áslaug Arna fær stuðning og gagnrýni eftir umfjöllun um laun hennar – „Hjóla af hörku og hatri gegn konum“ – „Sjúga spena ríkisins“

Áslaug Arna fær stuðning og gagnrýni eftir umfjöllun um laun hennar – „Hjóla af hörku og hatri gegn konum“ – „Sjúga spena ríkisins“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Kvartaði vegna trúnaðarbrests í sveitarstjórn

Kvartaði vegna trúnaðarbrests í sveitarstjórn