Senne Lammens hefur skrifað undir samning hjá Manchester United. Félagið staðfestir kaupin á markverðinum í kvöld.
Lammens kemur til United frá Royal Antwerp í Belgíu en hann er 23 ára gamall.
„Ég er virkilega stoltur af því að ganga í raðri Mancehster United, þetta er draumur að rætast,“ segir Lammens.
„Þetta er fullkomið félag til að halda áfram að bæta mig í þessu spennandi liði.“
Lammens hefur spilað fyrir öll yngri landslið í Belgíu en talið er að Ruben Amorim gefi honum strax traustið í markið á Old Trafford.