Góður lax stendur alltaf fyrir sínu enda stútfullur af mikilvægum næringarefnum. Þessi uppskrift, sem er úr smiðju Berglindar Hreiðarsdóttur fyrir Gott í matinn, er allt í senn einföld, fljótleg og góð!
Innihald
4 skammtar
Lax:
800 gr laxaflök
salt og pipar
ólífuolía
fersk steinselja
Sítrónusósa
1/2 stk. laukur, mjög fínt saxaður
safi úr einni sítrónu
60 ml hvítvín
125 ml rjómi frá Gott í matinn
110 gr. smjör (við stofuhita)
salt eftir smekk
Annað meðlæti:
bakaðar kartöflur með smjöri og salti
ferskt salat að eigin vali, til dæmis klettasalat, mangó, avókadó, kasjúhnnetur og Dala Feta
ferskar sítrónusneiðar
Skref 1
- Skerið laxinn í hæfilega stóra bita og raðið í eldfast mót.
- Penslið með olíu og kryddið með salti og pipar.
- Bakið við um 215°C í 10-15 mínútur (fer eftir þykkt flakanna).
- Stráið ferskri steinselju yfir laxinn þegar hann kemur úr ofninum.
Skref 2
- Á meðan laxinn er í ofninum er sósan útbúin.
- Setjið lauk, sítrónusafa og hvítvín saman í pott og sjóðið niður í 8-12 mínútur eða þar til sósan fer að þykkna.
- Hrærið rjómanum saman við og náið upp suðu að nýju.
- Takið pottinn þá af hellunni og hrærið smjörinu varlega saman við þar til það hefur bráðnað (lítinn hluta í einu).
- Kryddið til með salti eftir smekk og haldið heitu á lágum hita þar til bera á fram.