Bandaríski leikarinn Kelsey Grammer á von á áttunda barni sínum með eiginkonunni, Kayte Walsh. Barnið er þeirra fjórða barn saman.
„Kelsey er himinlifandi að fá loksins tíma til að njóta þess að vera faðir aftur,“ sagði heimildamaður við Daily Mail. „Hann hefur stutt Kayte ótrúlega vel alla meðgönguna, sem, þótt óvænt sé, hefur kveikt neista í hjónabandi þeirra sem þau bæði þurftu á að halda. Eftir að hafa gefið Frasier annað tækifæri hefur hann lagt áherslu á þessa persónu og er tilbúinn fyrir næsta áfanga lífs síns. Hann hlakkar til að tileinka sér virkt foreldrahlutverk sem hann saknaði í fortíðinni.“
Grammer sem varð heimsþekktur í hlutverki sínu sem sálfræðingurinn Frasier í sjónvarpsþáttunum Cheers (1984-1993) og seinna Frasier (1993-2004), en síðarnefndu þættirnir voru endurvaktir árið 2023 og hafa tvær þáttaraðir verið sýndar.
Grammer og Walsh hittust árið 2009 og giftu sig í febrúar 2011. Hjónabandið var það fjórða hjá Grammer. Walsh er 25 árum yngri en eiginmaðurinn og saman eiga þau dótturina Faith, 12 ára, og synina Gabriel, tíu ára, og James, átta ára.
Þegar Grammer og Walsh kynntust var hann giftur Camille Grammer, sem hann á dótturina Mason, 23 ára, og soninn Jude, 20 ára, með. Með fyrstu eiginkonunni, Dorrenn Alderman, á hann dótturina Spencer, sem er 41 árs. Grammer á dótturina Greer, 33 ára, með fyrrum kærustu sinni Barrie Buckner.
Í viðtali við The Guardian árið 2018 sagði Grammer að hann hefði „séð eftir því … fyrr í lífi sínu“ að hafa verið svo „upptekinn“ af vinnu að fjölskyldulíf hans „þjáðist“.
Grammer sagði: „Í alvöru, fegurðin við að vera eldri pabbi er sú að maður fær tækifæri til að reyna þetta aftur. Það hefur verið sönn gjöf.“
Fjórum árum síðar ræddi hann samband sitt við elstu dóttur sína og hvaða áhrif vinna hans hefði haft á samband þeirra. Í viðtali við People árið 2022 sagði hann þau Spencer hafa sæst og þau væru í góðum málum í samskiptum þeirra.