Ása Guðbjörg Ellerup, eiginkona hins meinta raðmorðingja Rex Heuermann, segist sannfærð um að lögreglan hafi rangan mann í haldi. Rex sé fyrst og fremst fjölskyldumaður og hún vilji hann sem fyrst aftur heim til sín og barnanna. „Hann er hetjan mín,“ segir Ása í viðtali í heimildarþáttaröðinni „The Gilgo Beach Killer: House of Secrets“ sem framleidd er af Peacock en í þáttaröðinni lýsir Ása því hvernig hún hafi fallið aftur fyrir Rex þar sem hann er lokaður á bak við lás og slá.
Eins og alþjóð veit hefur Rex setið í haldi lögreglu í um tvö ár, grunaður um að hafa myrt sjö kynlífsverkakonur á árunum 1993 til 2011.
Fyrst eftir að hin meintu myrkraverk Rex komu upp á yfirborðið virtist Ása reyna að fjarlægast eiginmann sinn. Hún sótti meðal annars um skilnað frá honum en þó var bent á það að það væri nauðsynlegt til þess að Ása gæti þegið háar greiðslur fyrir að segja sögu sína. Lög vestra banna það að glæpamenn, sem og þeir sem eru giftir illvirkjunum, geti hagnast á ódæðunum og því var nauðsynlegt að ganga frá hjónaskilnaði.
Var talsvert fjallað um á sínum tíma að Ása þáði um 1 milljón dollara fyrir að koma fram í heimildarmyndinni sem nú er tilbúin.
Ljóst er að Ása stendur heilshugar með Rex og segist sannfærð um sakleysi hans. Hann sé „dásamlegur eiginmaður“ og beri ekki ábyrgð á hinum hrottalegu sjö morðum sem hann er sakaður um.
„Ég veit hvað vondir menn geta gert. Ég hef séð og ég hef heyrt um það frá öðrum mönnum. En ekki eiginmaður minn. Þið eruð með rangan mann í haldi,“ segir Ása.
Í myndinni kemur fram að Ása hafi gengið í gegnum ýmislegt á yngri árum. Hún var kynferðislega misnotuð aðeins 16 ára gömul og lýsir því hvernig hún þurfti að fela sig í gámi tímunum saman, á nítjánda aldursári, til þess að forðast ofbeldismann. Hún hafi svo kynnst Rex og hann hafi verið bjargvættur hennar. Vinátta þeirra hafi síðan þróast út í ástarsamband sem leiddi til þess að þau giftu sig árið 1995 og eignuðust tvö börn.
Stormurinn í kringum Gilgo-málið hafi vissulega sett strik í reikninginn en í viðtalinu lýsir Ása því hvernig hún hafi aftur orðið ástfangin af Rex þar sem hann sat á bak við lás og slá. Hún tali reglulega við hann en sé mjög taugaveikluð yfir því að verið sé að hlusta á samtöl þeirra og treysti sér því ekki að opna sig upp á gátt í samtölum þeirra.
Þá er því haldið fram í þáttunum að Ása sé í afneitun með ýmis sönnunargögn sem bendi til sektar Rex. Til að mynda hafi lífsýni úr Ásu sjálfri fundist á einu líkinu en hún hunsi það hreinlega sem og ýmsar staðreyndir eins og að Rex safnaði blaðaúrklippum um morðin og þá fannst skuggalegt skjal á gömlum hörðum disk á heimili hjónanna. Um var að ræða texta-skjal sem virðist hafa að geyma leiðbeiningar fyrir myrkraverkin sem Rex er grunaður um.
Ása er hins vegar á því að Rex hafi verið heimakær maður sem hún sótti alltaf á lestarstöðina eftir vinnudaginn í Manhattan og það geti ekki verið að hann hafi haft tíma til þess að lokka til sín vændiskonur, myrða þær með hrottalegum hætti og losa sig við líkin á Gilgo-strönd.