Gummi stofnaði fyrirtækið AUTUMN ehf. í nóvember 2024 og rekur Kíró RVK undir því. En í sama mánuði var gamla fyrirtæki hans, Kírópraktorstöð Reykjavíkur, úrskurðað gjaldþrota.
Nafninu á fyrirtækinu var breytt í GBN-2024 ehf. tveimur vikum áður. Samkvæmt auglýsingu í Lögbirtingablaðinu voru lýstar kröfur tæplega 35 milljónir króna. Engar eignir fengust upp í lýstar kröfur í þrotabúi félagsins og var skiptum lokið 23. apríl.
Sjá einnig: Engar eignir fundust í gjaldþrota félagi Gumma kíró – „Þetta er heilmikill lærdómur“
Gummi stofnaði Kírópraktorstöð Reykjavíkur árið 2017 og stóð starfsemi þess allt til ársins 2023, þegar hann færði sig yfir á stofuna Líf Kíró í eigu Vignis Þórs Bollasonar.
Sjá einnig: Eldri kírópraktorstöð Gumma Kíró úrskurðuð gjaldþrota
Áhrifavaldurinn opnaði sig um gjaldþrotið í samtali við Smartland í nóvember.
„Það má segja að þetta hafi byrjað í COVID þar sem röð mistaka gerði það að verkum að það safnaðist upp skuldir hjá félaginu. Fyrirtæki fengu þann möguleika á að frysta greiðslur til skattsins eða staðgreiðslu vegna launagreiðslna sem við nýttum okkur á sínum tíma. Laun hjá fyrirtækinu voru há og skuldin hækkaði hratt,“ sagði hann.
„Ég náði að lækka heildarskuldir heilmikið niður en síðasti hjallinn var skatturinn og á endanum náði ég ekki að semja við hann. Skatturinn er harður húsbóndi þegar kemur að rekstri en ég sem betur fer náði að greiða allt annað niður. Þetta er heilmikill lærdómur sem ég tek með mér og mun gera enn betur.“
Sjá einnig: Kristjana stekkur beint út í djúpu laugina og stofnar fyrirtæki með Gumma Kíró
Í mars stofnaði Gummi annað fyrirtæki, Atelier Agency, umboðsskrifstofu fyrir áhrifavalda, ásamt Kristjönu Björk Barðdal.