fbpx
Laugardagur 07.júní 2025
Fréttir

Hótar Trump með heimsstyrjöld vegna gagnrýni hans á Pútín

Ritstjórn DV
Föstudaginn 6. júní 2025 03:28

Dmitry Medvedev. Mynd:Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Dmitry Medvedev, fyrrum forseti Rússlands og nú meðlimur í öryggisráði landsins, hótaði Donald Trump nýlega þriðju heimsstyrjöldinni vegna gagnrýni hans á aðgerðir Vladímír Pútíns í Úkraínu.

Keith Kellogg, sérstakur sendifulltrúi Trump í málefnum Rússlands og Úkraínu, sagði ummæli forsetans fyrrverandi vera „ábyrgðarlaus“.

Það reitti Medvedev til reiði að Trump sagði að Pútín sé „klikkaður“ en það gerði hann í kjölfar harðra árása Rússa á Kiyv. Hann bætti síðan um betur og skrifaði á Truth Social: „Það sem Vladímír Pútín skilur ekki er að ef ekki væri fyrir mig, þá hefði margt slæmt komið fyrir Rússland og ég meina MJÖG SLÆMT. Hann leikur sér að eldi!“

Medvedev, sem var forseti Rússlands frá 2008 til 2012 (Pútín var þá forsætisráðherra og dylst fáum að Medvedev var í raun bara leppur hans í embættinu) tók ummælum Trump illa og skrifaði: „Ég veit bara um einn slæman hlut – þriðju heimsstyrjöldina. Ég vona að Trump skilji þetta!“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Rekinn úr starfi hjá ríkinu vegna lélegrar frammistöðu – Fór í mál en fær ekki krónu í bætur

Rekinn úr starfi hjá ríkinu vegna lélegrar frammistöðu – Fór í mál en fær ekki krónu í bætur
Fréttir
Í gær

Sigmar boðar breytingar: „Minn­ing­in um lok­un­ina síðasta sum­ar er enn í fersku minni“

Sigmar boðar breytingar: „Minn­ing­in um lok­un­ina síðasta sum­ar er enn í fersku minni“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Húsfélagið í vanda vegna þess að einn „nískupúki“ stöðvar allt – „Hann mætir á enga húsfundi og vill aldrei staðfesta neinar framkvæmdir“

Húsfélagið í vanda vegna þess að einn „nískupúki“ stöðvar allt – „Hann mætir á enga húsfundi og vill aldrei staðfesta neinar framkvæmdir“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Egill lætur umdeildan fyrirlesara heyra það – „Hvílíkur endemis auli“

Egill lætur umdeildan fyrirlesara heyra það – „Hvílíkur endemis auli“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Flaug til Íslands með stútfullt kælibox af mat – „Þetta sparaði okkur stórfé“

Flaug til Íslands með stútfullt kælibox af mat – „Þetta sparaði okkur stórfé“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Þinghald lokað í máli Yms – Banaði móður sinni með 22 stungum

Þinghald lokað í máli Yms – Banaði móður sinni með 22 stungum