fbpx
Sunnudagur 19.apríl 2026
Fréttir

Handtekinn fyrir ölvun við akstur án bíllykla en fær engar bætur

Ritstjórn DV
Laugardaginn 31. maí 2025 09:00

Myndin tengist fréttinni ekki beint

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Héraðsdómur Reykjavíkur hefur sýknað ríkið af bótakröfum manns sem var handtekinn fyrir ölvun við akstur á bílastæði. Maðurinn sagðist upphaflega hafa hafið drykkjuna þegar hann settist upp í bílinn en aldrei ekið af stað. Breytti hann síðan framburði sínum og vísaði til þess að hann gæti ekki hafa ekið bílnum þar sem lyklarnir að honum voru hvergi sjáanlegir þegar lögreglan kom á vettvang.

Rétt fyrir miðnætti í september 2022 var lögreglu tilkynnt um einkenninlegt háttalagt ökumanns á bílastæði við fjölbýlishús. Samkvæmt tilkynningunni keyrði maðurinn fram og aftur á bílastæðinu en fór aldrei neitt lengra.

Í frumskýrslu lögreglu kom fram að þegar hún kom á vettvang hafi bíllinn verið kyrrstæður og ekki í gangi en maðurinn setið undir stýri. Hann hafi viðurkennt áfengisneyslu og áfengismælir staðfest ölvun. Hann var í kjölfarið handtekinn fyrir ölvun við akstur, fluttur á lögreglustöð þar sem tekið var blóðsýni og var hann loks látinn laus 12 klukkutímum síðar, að lokinni skýrslutöku.

Í frumskýrslu var haft eftir manninum að hann hefði farið að drekka eftir að hann kom á bílastæðið akandi frá heimili móður sinnar. Hann neitaði að hafa ekið bifreiðinni eftir að drykkjan hófst. Lyklarnir að bílnum voru ekki sjáanlegir, samkvæmt skýrslunni, og fundust ekki við leit á manninum.

Opnaði frá svölunum

Í skýrslu morguninn eftir lýsti maðurinn atburðum öðruvísi. Hann hafi verið að drekka heima hjá sér en farið út í bifreiðina til að ræða við bróður sinn í næði, í síma, og hafi opnað bílinn frá svölum íbúðar sinnar en ekki tekið lyklana með sér og því hvorki ræst bílinn né ekið honum.

Í október 2022 var manninum tilkynnt að rannsókn málsins hefði verið felld niður. Hann krafðist í kjölfarið bóta og fullyrti þá að hann hefði setið í farþegasæti bílsins þegar lögreglan kom að.

Í stefnu sinni vildi maðurinn meina að handtakan hafi verið úr hófi fram, hann hafi verið samstarfsfús allan tímann. Rökstuddur grunur hafi ekki verið um ólögmætt athæfi af hans hálfu og ekki nauðsynlegt að handtaka hann til að koma í veg fyrir að hann æki ölvaður þar sem hann hafi ekki verið með bíllyklana á sér. Sagði maðurinn að hann hefði á engan hátt stuðlað að þeim aðgerðum sem lögreglan beitti gegn honum. Gerði hann einnig athugasemd við að blóðsýni var tekið úr honum án dómsúrskurðar.

Fullt tilefni

Ríkið andmælti bótakröfunni á þeim grunni að fullt tilefni hafi verið til aðgerðanna. Maðurinn hafi viðurkennt akstur undir áhrifum, setið undir stýri og áfengismælir staðfest ölvun. Það ráði ekki úrslitum að bíllyklarnir hafi ekki fundist. Andmælti ríkið fullyrðingum mannsins um að hann hefði opnað bílinn frá svölum íbúðar sinnar og sest síðan upp í hann án þess að aka af stað. Hann hafi upphaflega sagst hafa verið að keyra. Aðgerðir lögreglu hafi verið bein afleiðing af háttsemi mannsins.

Í niðurstöðu Héraðsdóms Reykjavíkur segir að maðurinn hafi viðurkennt ölvun í umrætt sinn og mæling staðfest það. Frumskýrsla og vitnisburður lögreglumanns staðfesti að maðurinn hafi setið í ökumannssætinu og því hafi ekki verið hnekkt þrátt fyrir fullyrðingar mannsins í stefnu um að hann hafi setið í farþegasætinu. Hann hafi sömuleiðis aldrei minnst á að hafa setið þar fyrr en bótakrafan var lögð fram.

Dómurinn segir að ljóst sé að maðurinn hafi sjálfur með háttalagi sínu stuðlað að þeim aðgerðum sem lögreglan beitti gegn honum. Hann hafi setið ölvaður undir stýri og engu breyti þótt bíllinn hafi ekki verið í gangi og lyklarnir ekki fundist. Aðgerðir lögreglu hafi ekki verið tilefnislausar og ekki ólögmætar og því er bótakröfu mannsins hafnað.

 

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Gufunesmálið í Landsrétti: Verjendur segja dómana allt of þunga

Gufunesmálið í Landsrétti: Verjendur segja dómana allt of þunga
Fréttir
Í gær

Nýja húsnæðið henti ekki Samhjálp og eigi að vera tímabundið

Nýja húsnæðið henti ekki Samhjálp og eigi að vera tímabundið
Fréttir
Í gær

Sjá fjármálin ekki sömu augum – „Rekstur Kópavogsbæjar er ekki sjálfbær“ – „Árangurinn af góðum rekstri er augljós“

Sjá fjármálin ekki sömu augum – „Rekstur Kópavogsbæjar er ekki sjálfbær“ – „Árangurinn af góðum rekstri er augljós“
Fréttir
Í gær

Ólafur svarar Guðna fullum hálsi og hvetur hann til að hringja í Þórólf

Ólafur svarar Guðna fullum hálsi og hvetur hann til að hringja í Þórólf
Fréttir
Fyrir 2 dögum

SÁÁ og Landspítalinn undirrita samning um sérnám lækna

SÁÁ og Landspítalinn undirrita samning um sérnám lækna
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Svona telur Róbert að borgin gæti sparað mörg hundruð milljónir

Svona telur Róbert að borgin gæti sparað mörg hundruð milljónir