fbpx
Sunnudagur 03.maí 2026
433

Stuðningsmaður Kosóvó: Íslenskir stuðningsmenn eru frábærir

Björn Þorfinnsson
Þriðjudaginn 7. mars 2017 06:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Beiðni um nauðungarsölu á einbýlishúsi Árna Johnsen í Breiðholti verður tekin fyrir á skrifstofu sýslumannsins í Kópavogi þann 6. apríl næstkomandi. Þetta kemur fram í auglýsingu sem birtist í Lögbirtingablaðinu. Gerðarbeiðendur eru A- og B-deildir Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins og eru fjárhæðir krafnanna rúmlega 20 milljónir króna.

Í samtali við DV segir Árni að um misskilning sé að ræða.

„Ég hef bara ekki heyrt um þetta og ég veit ekki til þess að það séu nein vandamál þar,“ segir Árni og kveðst hafa gert upp við kröfuhafana.

Hús Árna stendur við götuna Rituhóla og er um 350 fermetrar að stærð. Húsið var byggt árið 1979 og hefur Árni verið eigandi þess frá upphafi. Um miðjan febrúar síðastliðinn greindi DV frá því að Árni hefði sett húsið á sölu hjá Fasteignamarkaðinum og var ásett verð tæpar 95 milljónir króna. Þar var eignin sögð standa á „frábærum útsýnisstað við Elliðaárdalinn.“ Samkvæmt fasteignaskrá er húsið enn óselt og er ekki lengur auglýst á helstu fasteignavefjum landsins.

Þetta var ekki í fyrsta sinn sem Árni gerir tilraun til þess að selja Rituhóla. Húsið var fyrst auglýst til sölu árið 2014 en þá vakti athygli að húsið væri skráð í Fasteignaskrá um 100 fermetrum minna en það er í raun og veru. Í skránni var ekki getið til um íbúðina á neðri hæðinni. Fram kom að sonur Árna hefði búið í íbúðinni, sem væri ósamþykkt.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Í gær

Salah segir frá þætti Gerrard í það að hann sé að fara – „Ég man enn eftir þeim orðum“

Salah segir frá þætti Gerrard í það að hann sé að fara – „Ég man enn eftir þeim orðum“
Sport
Í gær

Óttast mest að þetta leggist á sálina á mönnum fyrir norðan – „Þeir áttu ekkert skilið“

Óttast mest að þetta leggist á sálina á mönnum fyrir norðan – „Þeir áttu ekkert skilið“
433Sport
Í gær

Ræddi lygilega atburðarás í Kópavogi – „Engin gæsla og menn fóru að skiptast á höggum“

Ræddi lygilega atburðarás í Kópavogi – „Engin gæsla og menn fóru að skiptast á höggum“
433Sport
Í gær

Tilkynnir að hún sé að hætta með tilfinningaþrungnu myndbandi

Tilkynnir að hún sé að hætta með tilfinningaþrungnu myndbandi
433Sport
Fyrir 2 dögum

Tveir á blaði til að fylla í skarð Glasner í sumar

Tveir á blaði til að fylla í skarð Glasner í sumar
433Sport
Fyrir 2 dögum

Rogers fyrsti kostur United en eru með ódýrari kost á blaði

Rogers fyrsti kostur United en eru með ódýrari kost á blaði
433Sport
Fyrir 2 dögum

Þetta er það sem stjörnurnar virðast spá mest í þegar þær koma til Íslands – „Maður er bara vanur því“

Þetta er það sem stjörnurnar virðast spá mest í þegar þær koma til Íslands – „Maður er bara vanur því“
433Sport
Fyrir 2 dögum

Nýr búningur United lekur á netið

Nýr búningur United lekur á netið
433Sport
Fyrir 2 dögum

Jóhann ómyrkur í máli – „Mér finnst þetta bara líta virkilega illa út“

Jóhann ómyrkur í máli – „Mér finnst þetta bara líta virkilega illa út“