

Danski markvörðurinn Kasper Schmeichel er einn af sérfræðingum Viaplay í enska boltanum og var að sjálfsögðu á vellinum í stórleik Manchester City og Arsenal á dögunum. Þar lýsti hann leiknum og tók viðtöl við leikmenn að leik loknum. Athygli vakti að Schmeichel var klæddur í Vindur Coat frakka frá íslenska fataframleiðandanum 66°Norður.
@viaplaysportdk Kasper Schmeichel giver sit bud på hvem, der løber med Premier League-titlen👀🏆 Manchester City kan overtage 1. pladsen med en sejr over Burnley onsdag. Følg med fra 20:55 på See📺 #pldk #premierleague #viaplaypremiersunday #viaplaysportdk ♬ original lyd – Viaplay Sport Danmark
Hann bætist þar með í hóp Dana sem klæðast 66°Norður á fótboltavellinum en fyrir eru knattspyrnustjórinn Thomas Frank, fyrrum stjóri Brentford og Tottenham, sem hefur margoft klæðst 66°Norður fatnaði á leikjum. Þá hafa Kasper Hjulmand, stjóri Bayer Leverkusen, og Vincent Kompany, einnig klæðst 66°Norður jökkum á vellinum.
Schmeichel lék lengst af með Manchester City og síðar Leicester í ensku úrvalsdeildinni og var meðal annars markvörður Leicester þegar liðið varð Englandsmeistari árið 2016. Hann á að baki 120 landsleiki fyrir danska landsliðið.
66°Norður er með tvær verslanir í Kaupmannahöfn og eina á Kastrup flugvelli og auk þess með verslun á Regent Street í London þannig að það eru hæg heimatökin fyrir Schmeichel
að versla sér úlpu frá íslenska fatamerkinu. Vindur Coat er ný útgáfa af klassíska Vindur jakkanum og úr sama flísfóðraða ullarefninu en er í síðu sniði með kraga.