

Frank Lampard vill ekki tjá sig um orðróm sem tengir hann við stjórastöðu Chelsea á ný.
Lampard, sem áður stýrði Chelsea á árunum 2019 til 2021, hefur nýverið tryggt sér meistaratitil í Championship-deildinni með Coventry City og mun því stýra liðinu í ensku úrvalsdeildinni á næsta tímabili.
Þrátt fyrir að hafa verið nefndur sem mögulegur arftaki eftir brottrekstur Liam Rosenior vill Lampard ekki fara út í þá umræðu. Það væri í þriðja sinn sem hann tæki við liðinu.
„Ég vil ekki tala um Chelsea eða stöðu þjálfara þar. Ég hef sjálfur verið í þeirri stöðu og það er óvirðing að dæma aðra án þess að þekkja aðstæður,“ sagði Lampard.
Hann lagði áherslu á að fókusinn væri alfarið á Coventry. „Ég er stjóri Coventry og er að njóta þess að hafa unnið deildina og komist upp,“ bætti hann við.
Lampard virðist því ekki vera að huga að breytingum að svo stöddu.