fbpx
Föstudagur 17.apríl 2026
433Sport

Höskuldur var í Mexíkó þegar ofbeldisalda braust út: Segir að þetta hafi vakið mestan óhug – „Þá væri ekki allur sannleikurinn að koma í upplýsingagjöfinni frá þeim“

433
Sunnudaginn 15. mars 2026 07:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Höskuldur Gunnlaugsson og Ívar Örn Árnason, leikmenn Breiðabliks, voru gestir Helga Fannars Sigurðssonar í Íþróttavikunni.

Höskuldur Gunnlaugsson fór með íslenska landsliðinu til Mexíkó á dögunum að spila æfingaleik við heimamenn. Þegar liðið var nýkomið út var stór glæpaforingi í landinu myrtur af yfirvöldum og varð í kjölfarið óöld í landinu. Óvissa var um leikinn um tíma.

„Það var framandi og pínu óhugnanlegt. Við vissum ekkert og ég held að þeir sem voru í starfsliðinu og fyrir utan þetta hafi ekki vitað neitt heldur. Það er ekki beint fordæmi fyrir þessu.

Svo kom í ljós að þetta væri svolítið staðbundið eftir svæðum og við stæðum utan þess. Samhliða því var öryggisgæslan hert og maður fann heldur betur fyrir því,“ sagði Höskuldur um málið.

„Þetta var pínu leiðinlegt upp á það að gera að við vorum í smá stofufangelsi þarna, af öryggisástæðum. Þannig vonir um að fá mexíkóska menningu beint í æð dvínuðu.“

Höskuldur var viss um tíma um að leikurinn færi ekki fram.

„Þegar þetta gerðist hélt ég að við værum bara að leita að fyrsta leiguflugi út úr Mexíkó. En svo þegar leið nær leiknum varð líklegra en ekki að við myndum spila.“

Mexíkóar höfðu mikið að sanna með því að halda leiknum á, en þjóðin heldur HM í sumar með Bandaríkjunum og Kanada.

„Það fannst mér óhugnanlegast, að yfirvöld væru aldrei að fara að gefa þennan æfingaleik því þá ertu bara að sýna að þú ráðir ekki við að halda utan um æfingaleik á móti Íslandi korter í HM. Ég leiddi hugann að því að þá væri ekki allur sannleikurinn að koma í upplýsingagjöfinni frá þeim.“

Mexíkó vann leikinn 4-0 og stemningin á vellinum var mikil.

„Það er mikill kúltúr fyrir fótbolta þarna og það voru mikil sýningarhöld fyrir leikinn. Það var lúðrasveit og einsöngvarar. Þetta var skemmtilegur viðburður. En þetta var gott lið sem við vorum að mæta.“

Þátturinn er í spilaranum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Það að nota ólöglega sjónvarpsþjónustu getur kostað sitt – Margir lenda í þessu

Það að nota ólöglega sjónvarpsþjónustu getur kostað sitt – Margir lenda í þessu
433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Þetta er raunveruleg ástæða þess að Maguire fékk lengra bann

Þetta er raunveruleg ástæða þess að Maguire fékk lengra bann
433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Manchester City staðfestir tíðindin

Manchester City staðfestir tíðindin
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Er arftaki Enzo þegar að spila í ensku úrvalsdeildinni?

Er arftaki Enzo þegar að spila í ensku úrvalsdeildinni?
433Sport
Fyrir 19 klukkutímum

Seldur frá Skaganum til Svíþjóðar – Spilar á Íslandi fram á mitt sumar

Seldur frá Skaganum til Svíþjóðar – Spilar á Íslandi fram á mitt sumar
433Sport
Fyrir 20 klukkutímum

Opinbera hvað Maguire sagði sem varð til þess að bann hans var þyngt

Opinbera hvað Maguire sagði sem varð til þess að bann hans var þyngt
433Sport
Fyrir 21 klukkutímum

Hið virta blað segir að þess vegna leiði Liverpool kapphlaupið

Hið virta blað segir að þess vegna leiði Liverpool kapphlaupið
433Sport
Fyrir 23 klukkutímum

City eltist við mjög efnilegan bakvörð

City eltist við mjög efnilegan bakvörð
433Sport
Í gær

Stjarna Arsenal fékk stórfurðulega spurningu eftir að liðið komst áfram í gær – Myndband

Stjarna Arsenal fékk stórfurðulega spurningu eftir að liðið komst áfram í gær – Myndband