fbpx
Laugardagur 02.maí 2026
433Sport

UEFA hefur áhyggjur af breytingum á Englandi – Forskotið gæti aukist enn frekar

Helgi Fannar Sigurðsson
Miðvikudaginn 11. mars 2026 07:30

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

UEFA hefur áhyggjur af nýjum fjármálareglum ensku úrvalsdeildarinnar, sem taka gildi á næsta tímabili og gætu aukið fjárhagslegt forskot ensku deildarinnar enn frekar.

Enska deildin ætlar að taka upp svokallað Squad Cost Ratio (SCR) kerfi þar sem félög mega eyða allt að 85% af tekjum sínum í leikmannakostnað. Með ákveðnum undanþágum gæti hlutfallið farið allt að 115%.

Í Evrópukeppnum UEFA, Meistaradeild, Evrópudeild og Sambandsdeild, gildir hins vegar 70% hámark samkvæmt reglum UEFA.

UEFA óttast að þessi munur geti aukið fjárhagslegt vald enskra félaga, sérstaklega þeirra sem taka ekki þátt í Evrópukeppnum. Slík lið gætu þá eytt meira en mörg stórlið á meginlandi Evrópu.

Samkvæmt Andrea Traverso, yfirmanni fjármálasjálfbærni hjá UEFA, skapa slíkar reglur spennu á leikmannamarkaðnum. Hann bendir á að ensk félög framleiði nú um fjórðung allra tekna evrópskra knattspyrnufélaga og að um 40% verðmætustu leikmanna heims spili í Englandi.

La Liga, Bundesliga og aðrar deildir hafa mun strangari reglur til samanburðar

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 23 klukkutímum

Fundarhöld um helgina

Fundarhöld um helgina
433Sport
Í gær

Þetta er það sem stjörnurnar virðast spá mest í þegar þær koma til Íslands – „Maður er bara vanur því“

Þetta er það sem stjörnurnar virðast spá mest í þegar þær koma til Íslands – „Maður er bara vanur því“
433Sport
Í gær

Stefnir í harða baráttu á milli United og Arsenal

Stefnir í harða baráttu á milli United og Arsenal
433Sport
Í gær

Vill þjálfa aftur á Englandi

Vill þjálfa aftur á Englandi