

Dani Ceballos er sagður hafa átt í hörðum orðaskiptum við þjálfara Real Madrid, Álvaro Arbeloa, á æfingasvæði félagsins.
Samkvæmt spænskum miðlum óskaði Ceballos eftir fundi með Arbeloa í síðustu viku þar sem hann var ósáttur við að hafa ekki fengið mínútur eftir að hafa snúið aftur úr meiðslum í byrjun apríl.
Fundurinn á að hafa farið illa og spennan milli þeirra aukist enn frekar. Eftir á er Ceballos sagður hafa látið liðsfélaga sína vita að hann hefði beðið Arbeloa um að hafa ekki samband við sig aftur.
Miðjumaðurinn var svo skilinn eftir utan hóps Real Madrid fyrir leikinn gegn Real Betis síðasta föstudag.
Atvikið bætir við spennu innan herbúða Madrídinga á viðkvæmum tíma í titilbaráttunni þar sem liðið hefur misst niður stig í baráttunni við Barcelona.