

Jóhann Skúli Jónsson, gjarnan kallaður Jói Skúli, var gestur Helga Fannars í nýjasta þætti af Íþróttavikunni og með þeim var einnig Hörður Snævar Jónsson.
KR-ingar fljúga með himinskautum í upphafi móts í Bestu deild karla og er jafnvel farið að tala um þá sem Íslandsmeistaraefni.
„Ef þú horfir á leikmannahópinn, þetta lítur allt öðruvísi út en í fyrra. Í fyrra var Eiður Gauti starfsmaður í banka sem var búinn að spila eitt tímabil með HK. Nú er hann bara proper nía og ein sú besta í deildinni. Aron Sig er í topp tveir yfir bestu menn deildarinnar.
Þú ert með Arnór Ingva, sem gerir til tilkall til að vera stærsti prófíllinn í deildinni. Það er fullt af gaurum að stíga upp og taka stór skref síðan í fyrra. Þetta eru búnar að vera það sannfærandi frammistöður, fyrir utan kannski á móti Keflavík í fyrstu umferð en þeir náðu því yfir línuna. Það efldi menn klárlega. Þetta hefur verið mjög solid,“ sagði Jóhann.
„Eina áhyggjuefnið er kannski að þeir fá á sig tvö mörk í öllum þessum leikjum. FH-leikurinn á að fara 10-2, þeir eru alltaf að hleypa þessu inn.
Aron Sig er auðvitað frábær en mér finnst stærsti munurinn vera sá að Finnur Tómas er búinn að vera geggjaður. Þú klínir þessum mörkum ekkert á hann. Hann var hálf sofandi í fyrra,“ sagði Hörður.
Nánar í spilaranum.