

Manchester United vill ekki fara í verðstríð um Elliot Anderson, miðjumann Nottingham Forest.
United hefur áhuga á 23 ára enska landsliðsmanninum, en þar sem Manchester City er einnig í baráttunni vill félagið ekki greiða of hátt verð fyrir leikmanninn.
Ef samkeppnin um Anderson verður of hörð gæti United þess í stað beint sjónum sínum að öðrum kostum á miðjunni, þar á meðal Carlos Baleba hjá Brighton & Hove Albion.
Styrking miðjunnar er eitt helsta markmið Manchester United fyrir sumargluggann og félagið er að skoða fleiri en einn möguleika.