fbpx
Laugardagur 02.maí 2026
433Sport

Simeone óð í leikmann Arsenal við leikmannagöngin eftir leik í gær – Myndband

Helgi Fannar Sigurðsson
Fimmtudaginn 30. apríl 2026 12:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Diego Simeone, stjóri Atletico Madrid, óð í Ben White, leikmann Arsenal, eftir 1-1 jafntefli liðanna á Spáni í fyrri leiknum í undanúrslitum Meistaradeildarinnar.

Uppákoman varð eftir leikinn þegar White steig á merki Atletico við leikmannagöngin, sem fór illa í Simeone. Úr varð nokkurt uppþot áður en leikmenn voru aðskildir.

Það er fremur algengt að leikmenn forðist það að stíga á merki félaga sem eru gjarnan við völlinn eða í kringum hann.

Umræða skapaðist um atvikið á samfélagsmiðlum og, eins og búast má við, voru skiptar skoðanir. Mörgum finnst þetta full dramatísk viðbrögð Simeone við að einhver stígi á eitthvað sem er á jörðinni.

Seinni leikur liðanna fer fram á Emirates-vellinum í næstu viku, en hér að neðan má sjá áðurnefnda uppákomu.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 19 klukkutímum

Tveir á blaði til að fylla í skarð Glasner í sumar

Tveir á blaði til að fylla í skarð Glasner í sumar
433Sport
Fyrir 21 klukkutímum
Fundarhöld um helgina
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Þetta er það sem stjörnurnar virðast spá mest í þegar þær koma til Íslands – „Maður er bara vanur því“

Þetta er það sem stjörnurnar virðast spá mest í þegar þær koma til Íslands – „Maður er bara vanur því“
433Sport
Fyrir 23 klukkutímum

Vaxandi áhugi á Jadon Sancho

Vaxandi áhugi á Jadon Sancho
433Sport
Í gær

Uppnám í Hollandi vegna lagadeilu – Gæti þurft að spila 133 leiki aftur

Uppnám í Hollandi vegna lagadeilu – Gæti þurft að spila 133 leiki aftur
433Sport
Í gær

Langskotið og dauðafærið – Skilar Tottenham stóra seðlinum í hús með bakið upp við vegg?

Langskotið og dauðafærið – Skilar Tottenham stóra seðlinum í hús með bakið upp við vegg?
433Sport
Í gær

Fær þungt fann fyrir að berja andstæðing í miðjum leik á Spáni – Sjáðu atvikið

Fær þungt fann fyrir að berja andstæðing í miðjum leik á Spáni – Sjáðu atvikið
433Sport
Í gær

Baunar á yfirvöld í kjölfar þess að skjali var lekið – „Ég veit að það dró pabba minn til dauða“

Baunar á yfirvöld í kjölfar þess að skjali var lekið – „Ég veit að það dró pabba minn til dauða“