

Fyrrverandi fyrirliði enska landsliðsins og Chelsea, John Terry, hefur vakið athygli eftir að lýsa yfir stuðningi við umdeild pólitísk ummæli um að banna útlendingum að þiggja félagslegar bætur í Bretlandi.
Terry brást við færslu á Instagram frá stjórnmálamanninum Rupert Lowe, fyrrverandi þingmanni Reform UK sem hefur nú stofnað nýjan stjórnmálaflokk undir nafninu Restore Britain.
Í færslunni sagði Lowe að banna ætti útlendingum að fá bætur og vísa brott innflytjendum sem gætu ekki séð fyrir sér fjárhagslega. Terry svaraði einfaldlega: „100% já.“
Fyrrverandi fyrirliði Chelsea, Dennis Wise, tók einnig undir og skrifaði „200%.“
Þetta er ekki í fyrsta skipti sem Terry sýnir Lowe opinberan stuðning. Fyrr á árinu vakti hann einnig athygli fyrir að styðja umdeildar tillögur um að banna búrkur í Bretlandi.
Viðbrögð við ummælum Terry hafa verið blendin á samfélagsmiðlum, þar sem sumir hrósa honum fyrir hreinskilni en aðrir gagnrýna hann harðlega fyrir að styðja stefnu sem margir telja sundrandi og andsnúna innflytjendum.