

Wayne Rooney gagnrýndi Harry Kane eftir að framherjinn hrósaði varnarmönnum Bayern Munich þrátt fyrir 5-4 tap gegn Paris Saint-Germain í fyrri leik liðanna.
Leikurinn var sannkallaður markaleikur þar sem níu mörk voru skoruð og sóknarleikur beggja liða vakti mikla athygli. Kane, sem skoraði fyrsta mark Bayern úr vítaspyrnu, kaus hins vegar að hrósa varnarmönnum liðsins eftir leik.
„Þrátt fyrir níu mörk var frábær varnarleikur í einum gegn einum stöðum,“ sagði Kane og bætti við að varnarmenn Bayern hefðu staðið sig afar vel gegn bestu sóknarmönnum heims.
Rooney var ekki sammála þeirri greiningu.
„Ég elska Harry Kane, en það er engin leið að hann geti verið að hrósa varnarmönnunum eftir að hafa fengið á sig fimm mörk,“ sagði fyrrverandi fyrirliði Manchester United.
Ummælin hafa vakið athygli enda sýnist mörgum Kane hafa verið full jákvæður eftir markaregninn í París.