fbpx
Miðvikudagur 29.apríl 2026
433Sport

Fundarhöld á Old Trafford í vikunni – Búist við að þessir séu allir til sölu í sumar

Hörður Snævar Jónsson
Miðvikudaginn 29. apríl 2026 09:00

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Manchester United hefur hafið undirbúning fyrir stórhreinsanir í leikmannahópnum í sumar og heldur fundi þessa vikuna um hvaða leikmenn muni yfirgefa félagið.

Samkvæmt heimildum vilja stjórnendur félagsins skýra framtíð nokkurra leikmanna sem fyrst til að auðvelda brottfarir þeirra.

Leikmenn á borð við Andre Onana, Marcus Rashford, Joshua Zirkzee og Manuel Ugarte mega allir leita sér að nýjum félögum.

United þarf að fá um 18,9 milljónir punda fyrir Onana til að forðast tap samkvæmt fjárhagsreglum deildarinnar. Markvörðurinn er nú á láni hjá Trabzonspor sem hefur áhuga á að kaupa hann.

Zirkzee gæti reynst erfiðari í sölu, þar sem United þarf um 21,9 milljónir punda fyrir framherjann sem hefur átt erfitt uppdráttar. Lánssamningur með kaupskyldu er talinn líklegur kostur.

Ugarte verður einnig á sölulista og er metinn á um 25 milljónir punda eftir vonbrigðatímabil.

Þá er framtíð Rashford enn óljós. Barcelona hefur kauprétt á honum en óvíst er hvort félagið nýti hann.

Auk þess munu Casemiro, Jadon Sancho og Tyrell Malacia yfirgefa félagið þegar samningar þeirra renna út.

United virðist því ætla í umfangsmikla endurskipulagningu á leikmannahópnum fyrir næsta tímabil.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Samþykkir nýjan samning og Bruno Fernandes er næstur

Samþykkir nýjan samning og Bruno Fernandes er næstur
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Þessir hafa verið bestir í Bestu deildinni

Þessir hafa verið bestir í Bestu deildinni
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Fundarhöld á næstunni og Gerrard gæti verið á leið í þjálfun á Englandi

Fundarhöld á næstunni og Gerrard gæti verið á leið í þjálfun á Englandi
433Sport
Fyrir 19 klukkutímum

Vilja losna við 9 milljarða fjárfestingu sína eftir aðeins nokkra mánuði

Vilja losna við 9 milljarða fjárfestingu sína eftir aðeins nokkra mánuði
433Sport
Fyrir 23 klukkutímum

Hafna beiðni City sem þurfa að spila þétt um miðjan næsta mánuð

Hafna beiðni City sem þurfa að spila þétt um miðjan næsta mánuð
433Sport
Fyrir 23 klukkutímum

Ótrúleg endurkoma Mourinho í kortunum í sumar – Forsetinn vill ráða hann

Ótrúleg endurkoma Mourinho í kortunum í sumar – Forsetinn vill ráða hann
433Sport
Í gær

Hugsi yfir breytingum á þessu ári – „Ég ætla að vona að maður endi ekki sem DV fyrirsögn“

Hugsi yfir breytingum á þessu ári – „Ég ætla að vona að maður endi ekki sem DV fyrirsögn“
433Sport
Í gær

Bellingham sakaður um ömurlegan leikaraskap um helgina

Bellingham sakaður um ömurlegan leikaraskap um helgina