fbpx
Miðvikudagur 29.apríl 2026
433Sport

Stóri Ange tjáir sig um möguleika Tottenham í fallbaráttunni

Helgi Fannar Sigurðsson
Mánudaginn 27. apríl 2026 13:00

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ange Postecoglou telur að Tottenham geti enn bjargað sér frá falli úr ensku úrvalsdeildinni þrátt fyrir að vera í erfiðri stöðu.

Postecoglou, sem var rekinn frá Tottenham eftir að hafa stýrt liðinu til sigurs í Evrópudeildinni fyrir tæpu ári síðan, segir liðið hafa gæði til að snúa genginu við.

„Ég trúi því enn að þeir geti þetta. Leikmannahópurinn er sterkur en er ekki vanur því að vera í fallbaráttu,“ segir Ástralinn.

Síðan Postecoglou var rekinn hefur Tottenham haft þrjá stjóra, en Roberto De Zerbi er sem stendur við stjórnvölinn.

Tottenham vann afar mikilvægan 1-0 sigur á Wolves um helgina, sem var sá fyrsti hjá liðinu í deildinni á árinu. Tottenham er þó enn tveimur stigum frá öruggu sæti þar sem West Ham vann sinn leik einnig.

Lærisveinar De Zerbi mætir Aston Villa í næsta leik.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Fundarhöld á næstunni og Gerrard gæti verið á leið í þjálfun á Englandi

Fundarhöld á næstunni og Gerrard gæti verið á leið í þjálfun á Englandi
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Vilja losna við 9 milljarða fjárfestingu sína eftir aðeins nokkra mánuði

Vilja losna við 9 milljarða fjárfestingu sína eftir aðeins nokkra mánuði
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Kveður City með hjartnæmu myndbandi – 19 stórir titlar á farsælum ferli

Kveður City með hjartnæmu myndbandi – 19 stórir titlar á farsælum ferli
433Sport
Fyrir 19 klukkutímum

Skiptar skoðanir eru innan herbúða Manchester United

Skiptar skoðanir eru innan herbúða Manchester United
433Sport
Fyrir 21 klukkutímum

Hugsi yfir breytingum á þessu ári – „Ég ætla að vona að maður endi ekki sem DV fyrirsögn“

Hugsi yfir breytingum á þessu ári – „Ég ætla að vona að maður endi ekki sem DV fyrirsögn“
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Bellingham sakaður um ömurlegan leikaraskap um helgina

Bellingham sakaður um ömurlegan leikaraskap um helgina
433Sport
Í gær

Newcastle horfir til framherjans sem Bayern ætlar ekki að kaupa

Newcastle horfir til framherjans sem Bayern ætlar ekki að kaupa
433Sport
Í gær

Bayern og Milan berjast um sama framherjann – Getur komið frítt í sumar

Bayern og Milan berjast um sama framherjann – Getur komið frítt í sumar